Visir.is orðinn stærri en mbl.is í fyrsta sinn

Samræmd vef­mæl­ing Modernus, sem mælir notkun á íslenskum vef­síðum, var birt rétt í þessu. Þar dregur til stór­tíð­inda þar sem Vísir.is, frétta- og afþrey­inga­vefur 365 miðla, er orð­inn stærsti vefur lands­ins og veltir mbl.is, frétta- og afþrey­ing­ar­vef Árvakurs/Morg­un­blaðs­ins úr sessi þegar horft er á ein­staka not­endur. Alls voru ein­stakir not­endur Vísis 602.233 í síð­ustu viku en not­endur mbl.is um 50 þús­und færri. Þetta er í fyrst sinn sem þetta ger­ist.

Notendum Vísis fjölg­aði gríð­ar­lega í síð­ustu viku, en alls um 21 pró­sent. Á sama tíma fækk­aði not­endum mbl.is um 3,3 pró­sent. Þegar litið er á dag­lega not­endur, fjölda inn­lita og flett­inga er notkun á mbl.is þó enn meiri en á Vísir.

Samkvæmt mæl­ingum þess­arar viku var 71 pró­sent umferð­ar­innar um Vísi inn­lend umferð. Það þýðir að 29 pró­sent hennar kom erlendis frá. Myndband af ungu fólki að velta bíl í bíla­kjall­ara Höfða­torgs er lík­ast til helsta ástæðan fyrir mik­illi eft­ir­sókn erlendra aðila á síð­una í vik­unni, enda var ensk útgáfa af frétt Vísis af því tekin upp á risa­stórum alþjóð­legum síðum á borð við Livelink og Reddit. Mynd­bandið hefur nú verið fjar­lægt. Vikuna áður en mynd­bandið var birt á Vísi, og fjöl­mörgum öðrum íslenskum miðlum, kom 17 pró­sent af heild­ar­um­ferð Vísis erlendis frá. Stökkið í erlendu notk­un­inni er því risa­stórt á milli vikna.

Ný vef­síða Kjarnans, sem var sett í loftið fyrir rúmum þremur vikum, er í 18. sæti yfir mest sóttu vef­síður lands­ins sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ing­unni, einu sæti ofar en vefur Við­skipta­blaðs­ins, vb.is. Notendur Kjarnans voru tæp­lega 39 þús­und í síð­ustu viku og fjölg­aði um 3,1 pró­sent á milli vikna.

Vert er að taka fram að miklar sveiflur geta verið í vef­mæl­ing­unum og upp­röðun á lista yfir mest sóttu síður getur breyst tölu­vert á milli vikna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár