Atvinnuleysi mun minna hér en víðast hvar annars staðar

Atvinnu­leysi mælist nú 4,1 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands. Samtals eru 7.500 atvinnu­laus, 3.800 konur og 3.700 karlar. Áætlaður fjöldi á aldr­inum 16 til 74 ára, sem er hinn skil­greindi vinnu­mark­aðs­aldur, er ríf­lega 231 þús­und, af um 328 þús­und íbúa heild­ar­jfölda. Atvinnu­þátt­taka er tæp­lega 80 pró­sent, og eru um 175 þús­und og sjö hund­ruð starf­andi á vinnu­mark­aði, en ríf­lega 48 þús­und utan vinnu­mark­aðar á fyrr­nefndu ára­bili.

Í alþjóð­legum sam­an­burði er atvinnu­leysi lítið hér á landi. Með­al­talið fyrir Evr­ópu­sam­bands­ríkin er tæp­lega ell­efu pró­sent, sam­kvæmt tölum Eurostat. Mest er það í löndum Suður-Evrópu við Mið­jarð­ar­hafið, á Spáni, Portúgal og Grikk­landi. Þar mælist það yfir 20 pró­sent. Atvinnu­leysið er hins vegar minna í Norður-Evrópu, og einna minnst á Norð­ur­lönd­unum og Þýska­landi, þar sem það mælist 4,9 pró­sent.

Í Banda­ríkj­unum mælist atvinnu­leysi nú um sex pró­sent, og hefur farið nokkuð hratt minnk­andi und­an­farin ár, eftir að hafa farið yfir 10 pró­sent á árinu 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár