Verkfall Læknafélags Íslands hafið

Verkfall Lækna­fé­lags Íslands hófst á mið­nætti. Verkfall Skurð­lækna­fé­lags Íslands hefst svo að morgni 4. nóv­em­ber hafi ekki heldur samist. Þrátt fyrir verk­falls­að­gerð­irnar verður bráða­til­fellum sinnt á Land­spít­ala en spít­al­inn hefur und­ir­búðið und­an­þágu­lista, lögum sam­kvæmt, sem ætlað er að tryggja öryggi sjúk­linga.

Búist er við röskun á starfi Land­spít­al­ans á meðan á verk­falli stendur, en aðgerð­irnar ná til til­tek­inna sviða og er fólk hvatt til þess að fylgj­ast með fram­vindu mála á Facebook-síðu land­spít­al­ans og á vef­síðu hans.

Ólafur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á Land­spít­al­anum, segir í pistli á vef­síðu spít­al­ans að verk­fallið sé mikið áhyggju­mál vegna þess hve mikið álag er á spít­al­anum fyrir. „Við höfum þungar áhyggjur af yfir­vof­andi verk­falli lækna. Land­spít­ali er ekki við­semj­andi þeirra en áhrif verk­falls­ins munu að lík­indum vega þyngst hér. Enda þótt bráða­til­vikum verði sinnt og verk­fall Lækna­fé­lags Íslands rað­ist ekki á sama tíma á öll klínísk svið spít­al­ans er starf­semin svo sam­an­t­vinnuð að búast má við áhrifum verk­falls út yfir það svið sem verk­fallið nær form­lega til. Sem dæmi má nefna að verk­fall á rann­sókn­ar­sviði hefur mikil áhrif á allar deildir spít­al­ans sem reiða sig á þjón­ustu þess, t.d. vegna úrlestra á mynd­rann­sóknum eða öðrum rann­sóknum. Á skurð­lækn­inga­sviði og aðgerða­sviði má búast við að fresta þurfi aðgerðum og biðlistar leng­ist þar með. Þá má nefna að verk­fall lækna á Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gæti haft umtals­verð áhrif þar sem búast má við að ein­hverjir telji sig þurfa að leita til bráða­mót­töku Land­spít­ala. Það er ástæða til að hafa af því sér­stakar áhyggjur þar sem álag og bið­tími þar er nú þegar umtals­verður,“ segir Ólafur í pistli sínum.

Uppfært: Upp­haf­lega var fréttin skrifuð rétt fyrir mið­nætti, áður en verk­fallið skall á, en hefur nú verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár