Hreiðar Már: Allir að starfa í góðri trú

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, segir í grein í Frétta­blað­inu í dag, undir yfir­skrift­inni engin skjöl voru frá­gengin, að hann telji stjórn­endur eða starfs­menn Seðla­banka Íslands ekki hafa gerst seka um umboðs­svik með lán­veit­ingu upp á 500 millj­ónir evra til Kaup­þings 6. októ­ber 2008. Hins vegar hafi ekki verið búið að ganga frá skjölum vegna láns­ins, áður en það var greitt út til Kaup­þings, og að lána­samn­ingur hafi ekki verið klár­aður. „Það er [...] óum­deilt að lánið til Kaup­þings var veitt án þess að lána­samn­ingur og veð­samn­ingur væru frá­gengin. Lánið var með öðrum orðum útgreitt og Kaup­þingi til ráð­stöf­unar áður en gengið var end­an­lega frá þessum skjölum. Það var raunar mis­minni hjá mér að lána­samn­ingur hafi verið klár­aður á næstu dögum eftir útborgun láns­ins. Það var aldrei klár­aður lána­samn­ingur á milli Kaup­þings og Seðla­bank­ans vegna þessa láns,“ segir Hreiðar Már í grein­inni.

Eins og Kjarninn greindi frá hefur nú verið stað­fest að tap skatt­greið­enda af lán­vet­ing­unni til Kaup­þings 6. októ­ber 2008 nemur um 35 millj­örðum króna, eða um 230 millj­ónum evra.

Hreiðar Már segir í grein sinni að hans mark­mið með greina­skrif­unum hafi aðeins verið það, að leggja áherslu á að lán­inu hafi aðeins verið ráð­stafað með hags­muni Kaup­þings og við­skipta­vina bank­ans að leið­ar­ljósi og að engar óeðli­legar fjár­magns­hreyf­ingar átt sér stað vegna láns­ins.

„Ég vil taka skýrt fram að ég tel ekki að stjórn­endur eða starfs­menn Seðla­bank­ans hafi gerst sekir um umboðs­svik við afgreiðslu láns­ins. Tímarnir voru óvenju­legir í byrjun októ­ber 2008 og ég held að starfs­menn og stjórn­endur Seðla­bank­ans hafi starfað í góðri trú og talið sig vera að vinna innan sinna heim­ilda og sam­kvæmt vilja rík­is­stjórnar. Enginn ásetn­ingur var um að valda fjár­hagstjóni. Stjórn­endur og starfs­menn Seðla­bank­ans voru undir miklu álagi nákvæm­lega eins og starfs­menn fjöl­margra inn­lendra fjár­mála­fyr­ir­tækja á þessum tíma sem tóku heið­ar­legar ákvarð­anir þó að e.t.v. megi eftir á finna að því að vikið hafi verið frá verk­ferlum við afgreiðslu ein­stakra lána­mála,“ segir Hreiðar Már í grein­inni.

Hreiðar Már segir enn fremur að ef skiln­ingur hans á því, hvað þurfti að ger­ast áður en skjala­vinnu vegna láns­ins var form­lega lokið, sé rangur þá biðj­ist hann afsök­unar á óná­kæmni í frá­sögn í fyrri grein hans. „Helsta athuga­semd Seðla­bank­ans við skrif mín var sú að bank­inn hafi verið búinn að tryggja sér veð í hluta­bréf­unum í FIH-bank­anum í lok við­skipta­dags 6. októ­ber en þó eftir að lánið hafði verið greitt út. Það kemur mér á óvart að Seðla­bank­inn líti svo á að veð­setn­ing­unni hafi verið að fullu lokið í lok við­skipta­dags 6. októ­ber. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Ein þeirra er sú stað­reynd að stjórn Kaup­þings hafði ekki komið saman og sam­þykkt að veð­setja hluta­bréfin í FIH til Seðla­bank­ans í lok við­skipta­dags 6. októ­ber. Sá fundur var hald­inn um kvöldið 6. októ­ber og hófst ekki fyrr en kl. 20.15. Mig minnir einnig að starfs­menn lög­fræði­deilda bank­anna hafi haldið áfram að vinna að loka­frá­gangi veð­setn­ingar hlut­anna að morgni 7. októ­ber. Ef það er rangt skilið hjá mér að þurft hafi að koma til sam­þykki stjórnar Kaup­þings banka hf. til að tryggja veð­setn­ingu bréf­anna og að vinnan sem fór fram 7. októ­ber hafi af þeim sökum verið óþörf biðst ég afsök­unar á óná­kvæmni minni í grein­inni í síð­ustu viku,“ segir Hreiðar Már í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár