Pæling dagsins: Hrunið krufið í Háskóla Íslands

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Kjarninn fékk á dög­unum inn­sýn í starf innan Háskóla Íslands þar sem hrun fjár­mála­kerf­is­ins er til skoð­unar. Guðni Th. Jóhann­es­son lektor kennir nám­skeið þar sem farið er yfir ýmsa þætti sem tengj­ast hrun­inu. Leslist­inn er langur og ítar­legur, enda atburð­irnir miklir að umfangi. Þá hafa komið í tím­ana hinir ýmsu gestir sem atburð­unum tengj­ast, fyrr­ver­andi ráð­herrar og rann­sak­endur ein­stakra þátta hruns­ins, meðal ann­arra. Það verður ekki annað sagt en að það sé öfunds­vert fyrir nem­endur að fá að kryfja þessa atburði til mergjar, næstum sam­hliða þeim í tíma. Það kann að vera að það sé ekki verið að leggja nægi­lega mikla áherslu á að læra af því sem aflaga fór í hrun­inu, svona almennt talað. Þetta nám­skeið er þó vís­bend­ing um að Háskóli Íslands sé að leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu. Og á hrós skilið fyrir það.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár