Uppselt á Ásgeir Trausta í Sidney - vinsældirnar vaxa hratt

Ásgeir Trausti Ein­ars­son, betur þekktur sem Ásgeir á erlendri grundu, hefur selt alla miða á tón­leika sína í stóra sal Óperu­húss­ins í Sidney, en þar verður hann á tón­leika­ferð frá 27. des­em­ber til 15. jan­úar. Aðrir tón­leikar hafa verið settir á, en mið­arnir á fyrri tón­leik­ana ruku út. Hann mun einnig leika á tvennum tón­leikum í Tokyo, en upp­selt er á þá fyrri.

Ásgeir Trausti hefur verið á tón­leika­ferð um Banda­ríkin að und­an­förnu, og hélt meðal ann­ars tón­leika í Lincoln Hall í Chicago, 12. októ­ber síð­ast­lið­inn, sem fengu fram­úr­skar­andi umsögn.

https://www.youtube.com/watch?v=kn60eDa3lDI

Spenntir fyrir Chicago


Ásgeir Trausti segir sjálfur að það hafi verið gaman að spila í Lincoln Hall, og upp­lifa góða strauma frá áhorf­endum. „Við vorum allir spenntir að koma aftur til Chicago til að spila á svona flottum tón­leika­stað og ekki skemmdi ánægja tón­leika­gesta fyrir. Lincoln Hall er helm­ingi stærri staður en sá sem við spil­uðum á síð­ast sem var í júní. Túrinn hér i Banda­ríkj­unum hefur bara gengið alveg ótrú­lega vel,“ sagði Ásgeir Trausti.

[caption id="attachment_10420" align="alignleft" width="300"] Ásgeir á tón­leikum á tón­list­ar­há­tíð­inni Treasure Island í San Francisco núna fyrir nokkrum dögum Mynd/GV[/caption]

Hann segir ferða­lagið hafa gengið vel, en eins og oft er með tón­leika­ferðir í Banda­ríkj­unum, þá fari mikil orka í löng ferða­lög milli staða. „Við ferð­umst um á „night­liner“ sem skemmir ekki fyrir og gerir alla upp­lifun­ina og ferða­lagið auð­veld­ara. Við erum búnir að vera á ferða­lagi síðan 27. sept­em­ber, byrj­uðum í Frakk­landi, áður en við fórum til Banda­ríkj­anna í byrjun októ­ber svo við erum nú líka orðnir spenntir yfir þvi að koma heim og spila á Iceland Airwaves mið­viku­dag­inn 5. nóv­em­ber. Við ætlum að gefa allt í þá tón­leika og koma fram með brassi, strengjum og frum­sýna það „show“ sem við ætlum nota á mörgum stórum tón­leikum sem framundan eru í Evrópu, Ástralíu og Japan,“ sagði Ásgeir Trausti.

Plata Ásgeirs, Dýrð í dauða­þögn, er mesta selda fyrsta plata tón­list­ar­manns í Íslands­sög­unni, með yfir 30 þús­und ein­tök seld. Platan nefn­ist In The Silence á ensku, og er Ásgeir nú að fylgja plöt­unni eftir með tón­leika­ferð sinni. Hinn 5. nóv­em­ber spilar Ásgeir Trausti á Iceland Airwaves í Silf­ur­bergi í Hörpunni.

Dagana 9. nóv­em­ber til 9. des­em­ber spilar Ásgeir á tón­leikum í Evrópu, meðal ann­ars í Koncerthuset í Kaup­manna­höfn, Rockerfeller í Osló og Shephard's Bush í London.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár