Útgerðarmenn gerðu grein fyrir miklum áhyggjum

Útgerð­ar­menn gerðu grein fyrir miklum áhyggjum sínum af því ef Rússar munu loka á inn­flutn­ing frá Íslandi á fundi með Gunnari Braga Sveins­syni utan­rík­is­ráð­herra í gær. Á fund­inum voru yfir tutt­ugu manns, full­trúar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, LÍÚ og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Orðrómur þess efnis hefur verið á sveimi á mörk­uðum í Rúss­landi, og hafa fisk­kaup­endur í Rúss­landi þegar dregið sig úr við­skiptum vegna þessa, en Hjörtur Gíslason, fram­kvæmda­stjóra Ögur­víkur, stað­festi það í gær.

Engar form­legar til­kynn­ingar hafa borist enn um að Rússar ætli sér að breyta afstöðu sinni hvað Ísland varðar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Ísland getur flutt vörur til Rúss­lands, vand­kvæða­lítið, en miklir hags­munir eru í húfi, ekki síst um þessar mundir. Um 20 millj­arða við­skipti voru við Rússland í fyrra, þar af 18 millj­arðar vegna sölu á mak­ríl­af­urðum. Haustin eru mik­il­vægur tími þegar mak­ríl­við­skipti eru ann­ars vegar og því eru margir útgerð­ar­menn ugg­andi yfir því ef lok­ast á við­skiptin við Ísland. Um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem seldur er héðan fer á Rúss­lands­markað.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem íslenskir útgerð­ar­menn hafa fengið, og ræddar voru á fund­inum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, þá getur ákvörðun um lokun á við­skiptum komið fram svo til fyr­ir­vara­laust. Þegar til­kynnt var um inn­flutn­ings­bannið, 23. júní síð­ast­lið­inn, þá fengu Norðmenn mjög lít­inn fyr­ir­vara um það, sem olli miklu tjóni, bæði fyrir kaup­endur og selj­endur, þar sem mis­jafnt er hvernig staðið er að upp­gjöri á slíkum við­skiptum.

Hinn 15. októ­ber birti Evr­ópu­ráðið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedónía, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu,stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rússum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans fór þetta illa í Rússa sem hafa hug á því að loka á við­skipti við þessi ríki, eða í það minnsta bregð­ast við með aðgerðum. Eins og áður segir liggur þó engin form­leg ákvörðun um það fyrir ennþá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár