Tvíhöfði snýr aftur í Hlaðvarpi Kjarnans

Tvíhöfði, í umsjón Jóns Gnarr og Sig­ur­jóns Kjart­ans­sonar, mun hefja göngu sína í hlað­varpi Kjarnans mið­viku­dag­inn 5. nóv­em­ber næst­kom­andi. Sam­komu­lag þess efnis var hand­salað nýverið. Um verður að ræða viku­lega hlað­varps­þætti sem hægt verður að nálg­ast á vef­síðu Kjarnans eða með því að ger­ast áskrif­andi í gegnum snjall­tæki. Það er gert með því að leita að "Kjarninn" í öllum hlað­varpsöppum. Nánari upp­lýs­ingar verður hægt að nálg­ast á www.kjarninn.is á sama tíma og fyrsti þátt­ur­inn fer í loftið.

[quote font="0" align="right"]"Þjóðin hefur sett Tvíhöfða í fyrsta sæti. Nú er komið að þjóð­inni að sitja framí!"[/quote]

Þekktir dag­skrár­liðir á borð við „Smá­sál­ina“ sem hlust­endur Tvíhöfða kann­ast við verða fyr­ir­ferða­miklir í þátt­unum. Auk þess verður boðið upp á nýj­ungar sem hafa verið að bræð­ast í höfði Tvíhöfða frá því að tvíeykið var síð­ast með reglu­lega útvarps­þætti.

[caption id="attachment_10422" align="aligncenter" width="640"] Sigurjón Kjart­ans­son og Jón Gnarr eru Tvíhöfði.[/caption]

Tvíhöfði fyrir málsmetandi menn og kellingar útí bæ


Jón Gnarr, annar helm­ingur Tvíhöfða, segir að það ríki mikil eft­ir­vænt­ing og barns­leg gleði hjá honum og Sig­ur­jóni vegna þess­arra tíma­móta. „Tvíhöfði hefur öðl­ast sess með þjóð­inni. Þjóðin hefur sett Tvíhöfða í fyrsta sæti. Nú er komið að þjóð­inni að sitja framí! Marg­miðl­un­ar­þrek­virkið Tvíhöfði er þjóðin og fyrir þjóð­ina. Við ætlum að hlusta á fólkið í land­inu. Okkur er alveg sama hvort þú ert hip­ster í Reykja­vík eða ein­hver lúði út á landi. Fyrir Tvíhöfða eru allir jafnir ef þeir eru Íslend­ingar. Tvíhöfði spyr ekki hvort þú sért ein­hver máls­met­andi maður eða bara ein­hver kell­ing útí bæ. Ef þú hefur eitt­hvað að segja þá er Tvíhöfði þín rödd.“

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, er að vonum ákafa­lega ánægður með að Tvíhöfði hafi valið að snúa aftur, í sam­starfi við Kjarnann. „Kjarninn ætlar að vera leið­andi í hlað­varpi á Íslandi. Við viljum bjóða upp á það sem er best. Og það er ekk­ert betra en Tvíhöfði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár