Reykjanesbær vill hærri arðgreiðslur frá HS Veitum vegna skulda

Reykja­nes­bær vill hærri arð­greiðslur frá HS Veitum, til að bregð­ast við grafal­var­legri fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er þessa hug­mynd að finna í sér­stakri aðgerð­ar­á­ætlun sem Reykja­nes­bær hyggst ráð­ast í vegna skulda­vanda sveit­ar­fé­lags­ins.

Arð­greiðslur HS Veitna á þessu ári, vegna rekstr­ar­árs­ins 2013, námu 300 millj­ónum króna, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans mun Reykja­nes­bær fara fram á að arð­greiðslur á næsta ári vegna yfir­stand­andi rekstr­ar­árs, verði um 600 millj­ónir króna.

Reykjanesbær fékk 200 milljónir í arðgreiðslur á þessu ári


Reykja­nes­bær á í dag rétt ríf­lega helm­ings­hlut í HS Veitum hf., en sveit­ar­fé­lagið fékk um 200 millj­ónir króna í sinn hlut í formi arð­greiðslna á þessu ári vegna rekstr­ar­árs­ins 2013. Þá átti sveit­ar­fé­lagið tæp­lega 67 pró­senta hlut í veitu­fyr­ir­tæk­inu, en síðan þá hefur sam­lags­fé­lagið Ursus I, sem er í meiri­hluta­eigu Heiðars Más Guð­jóns­sonar fjár­festis, eign­ast fimmtán pró­senta hlut Reykja­nes­bæjar í veitu­fyr­ir­tæk­inu. Þá tryggði Ursus sér sömu­leiðis ríf­lega 16,8 pró­senta hlut Orku­veitu Reykja­víkur í HS Veitum í febr­ú­ar­mán­uði síð­ast­liðnum, fyrir rúma 1,5 millj­arða króna. Við söl­una sam­þykkti Orku­veita Reykja­víkur að arð­greiðslur vegna árs­ins 2013 rynnu í sjóði Ursus, eða um 70 millj­ónir króna. End­an­legt sölu­verð hækk­aði í sam­ræmi við arð­greiðsl­una.

Ef hug­mynd Reykja­nes­bæjar hlýtur fram­göngu á meðal hlut­hafa veitu­fyr­ir­tæk­is­ins, mun sveit­ar­fé­lagið fá um 300 millj­óna króna arð­greiðslu á næsta ári. Aðrir hlut­hafar í HS Veitum eru eins og áður segir Ursus I, sem fer með ríf­lega 34 pró­senta hlut, Hafn­ar­fjarð­ar­bær, sem á ríf­lega 15 pró­senta hlut, og Sand­gerð­is­bær, sem fer með 0,1 pró­sents hlut í veitu­fyr­ir­tæk­inu.

Sveitarfélagið getur ekki staðið við skuldbindingar


Þann 14. októ­ber síð­ast­lið­inn sagði DV frá neyð­ar­fundi sem hald­inn var í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar dag­inn áður, þar sem lögð voru fram frum­drög svartrar skýrslu endu­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt heim­ildum DV skortir bæj­ar­sjóð Reykja­nes­bæjar 15 millj­arða króna til að geta staðið við lög­bundnar skuld­bind­ingar sínar um að koma skuldum niður fyrir 150 pró­sent af árlegum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins.

Reykja­nes­bær hyggst kynna nið­ur­stöður skýrslu KPMG á opnum íbúa­fundi, sem verður opinn fjöl­miðlum, í Stapa á mið­viku­dag­inn. Þar verður sam­hliða kynnt fyrr­greind aðgerð­ar­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins, sem er í sam­ræmi við til­lögur KPMG. Áætlunin hefur hlotið nafnið "Sóknin."

Til marks um alvar­lega skulda­stöðu Reykja­nes­bæjar hefur varla króna runnið úr sjóðum sveit­ar­fé­lags­ins til nið­ur­greiðslu skulda á síð­ast­liðnum árum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár