Hvað er þetta Snapchat sem allir eru að tala um?

Það er nýr höfð­ingi í dalnum. Hann heitir ekki Facebook heldur Snapchat. Þessi „nýi“ sam­fé­lags­mið­ill er um það bil að breyta því hvernig ung­lingar hegða sam­fé­lags­miðla­notkunn sinni með nýstár­legri tækni til að segja sögur.

Snapchat setti allt á annan endan í heimi sam­fé­lags­miðla þegar for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins höfn­uðu þriggja millj­arða dala til­boði frá Facebook 14. nóv­em­ber í fyrra. Næsta dag bauð Google fjóra millj­arða doll­ara en því til­boði var einnig hafnað. En hversu kúl eru nýju krakk­arnir í blokk­inni? Geta þeir bara sagt nei þegar töffar­arnir bjóða þeim út að leika?

http://www.youtube.com/watch?v=kKSr6h5-fCU

Fjöldi not­enda á Snapchat hefur rokið upp und­an­farin miss­eri. Flestir not­endur eru á aldr­inum 18 til 25 ára og yngri not­endur eru gríð­ar­lega virkir. Hátt í helm­ingur ung­menna á aldr­inum 12 til 24 ára í Banda­ríkj­unum hefur notað Snapchat, sam­kvæmt rann­sókn stjórn­mála­stofn­unnar Harvard-háskóla. Virkni fellur síðan eftir því sem ald­ur­inn er hærri, sam­kvæmt rann­sókn­inni.

Tól fyrir nektarmyndir?


Fyrr í þessum mán­uði bár­ust fregnir af því að tölvu­þrjótar hefðu kom­ist yfir þús­undir nekt­ar­mynda sem sendar voru í gegnum Snapchat. Nekt­ar­mynd­irnar, sem flestar voru af ungum stúlkum á Norð­ur­löndum, höfðu verið vistaðar í hlið­ar­for­riti frá þriðja aðila svo örygg­is­veggir Snapchat voru í raun ekki brotnir. En spurn­ingin sem situr eftir er hvort appið sé ein­fald­lega bara tól fyrir ung­menni til að senda klám­fengnar myndir sín á milli?

[quote font="0" align="right"]Aðeins 1,6 pró­sent svar­enda sögð­ust nota Snapchat aðal­lega til kyn­boða, en 14,2 pró­sent sögð­ust hafa notað appið til að senda skila­boð í per­sónu­legri kant­inum.[/quote]

Í rann­sókn sem gerð var við háskóla í Washington og Seattle var hegðun á Snapchat rann­sökuð. Gengið var út frá því að appið væri aðal­lega notað í kyn­boð (e. sext­ing - ensk sam­suða af „text­ing“ og „sex“), þar sem ögrandi myndum væri varpað á milli not­enda.

Nið­ur­stöð­urnar voru hins vegar á allt annan veg. Aðeins 1,6 pró­sent svar­enda sögð­ust nota Snapchat aðal­lega til kyn­boða, en 14,2 pró­sent sögð­ust hafa notað appið til að senda skila­boð í per­sónu­legri kant­inum. Meiri­hluti, eða tæp­lega 60 pró­sent, sögð­ust nota Snapchat til að senda grín eða skemmti­sögur.

Á mynd­band­inu hér að ofan má sjá vid­eó­bloggar­ann Casey Neistat fjalla um Snapchat-væð­ingu snjall­síma­kyn­slóð­ar­innar í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár