Ferðaþjónustufyrirtæki kært til lögreglu fyrir umhverfisspjöll

Umhverf­is­stofnun hyggst kæra með­limi banda­ríska vél­hjólateym­is­ins Dessert Assass­ins til lög­reglu vegna utan­vega­akst­urs og umhverf­is­spjalla á hálendi Íslands. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verður kæran send lög­reglu í dag, en meðal ann­ars er horft til leið­sögu­manna frá íslenska ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Arctic Rider, sem fóru fyrir hópnum.

Vísir greindi fyrst frá mál­inu, það er vél­hjóla­ferð­inni og fyr­ir­hug­aðri kæru á hendur Banda­ríkja­mönn­unum, en þar var hvergi minnst á þátt íslenska ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins í meintum brotum á nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Arctic Rider, sem hyggst bjóða ferða­mönnum upp á skipu­lagðar mót­or­kross vél­hjóla­ferðir næsta sumar, ann­að­ist skipu­lagn­ingu fimm daga vél­hjóla­ferðar Banda­ríkja­mann­anna um hálendi Íslands í byrjun sept­em­ber, en um prufu­ferð var að ræða. Myndband af ferð banda­ríkja­mann­anna, þar sem þeir sjást stunda umfangs­mik­inn utan­vega­akstur, hefur vakið athygli á net­inu. Að mati Umhverf­is­stofn­unar varðar það sem sést á mynd­band­inu við lög um nátt­úru­vernd. Meint brot varða allt að fjög­urra ára fang­elsi.

Jóhannes Svein­björns­son, leið­sögu­maður hjá Arctic Rider og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, fór fyrir hópnum, en auk hans voru með í för tveir starfs­menn Arctic Rider, en annar þeirra var Kári Jónsson, margaldur Íslands­meist­ari í mót­or­kross. Í mynd­band­inu lýsir einn Banda­ríkja­mað­ur­inn hvernig Jóhannes hafði frum­kvæðið að því að hóp­ur­inn hóf akstur utan slóða á þriðja degi ferð­ar­innar. "We got pretty juiced up as soon as Joey said: Hey, we are going to go ride off-track."

Athygli vekur að stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur og fata­fram­leið­and­inn Cintamani voru á meðal kost­un­ar­að­ila vél­hjóla­ferð­ar­innar.

Eigandi Arctic Rider vísar ásökunum um umhverfisspjöll á bug


Kjarninn náði tali af Jóhann­esi Svein­björns­syni, eig­enda Arctic Rider, en hann var þá staddur í Banda­ríkj­unum í heim­sókn hjá vél­hjóla­mönn­unum sem fóru með í fyrr­greinda ferð um hálendi Íslands. Hann vísar ásök­unum um að hóp­ur­inn hafi framið umhverf­is­spjöll alfarið á bug.

"Það er mjög sær­andi að heyra við­brögð fólks við þess­ari ferð, því við keyrðum aldrei út fyrir slóða. Við keyrðum á mal­ar­vegum, en það liggja jeppa­vegir út um allt land eins og flestir Íslend­ingar vita. Fólk sem fer aldrei út úr 101 veit þetta ekki, en svo drullar það það yfir mann eins og maður sé búinn að eyði­leggja landið," sagði Jóhannes í sam­tali við Kjarnann.

Aðspurður um hvort mynd­bandið sýni ekki í raun vél­hjóla­menn­ina á akstri utan vega, svar­aði Jóhannes: "Við keyrðum þessa slóða út um allt, ég var með ferð­ina afmark­aða í GPS leið­sögu­tæki, en svo fórum við upp að Heklu. Hekla er bara vikur og það er eina "off-trackið" sem við gerðum. Svo keyrðum við árfar­veg þar niður, sem er bara hraun, það er eina "off-trackið" sem við gerðum."

[caption id="attachment_10394" align="alignnone" width="640"] Hér sjást vél­hjóla­menn­irnir aka á svæði utan slóða í námunda við Heklu.[/caption]

Jóhannes kveðst engar áhyggjur hafa af lög­reglu­rann­sókn vegna máls­ins. "Við leggjum mikið upp úr því að fara aldrei út fyrir slóða. Það var einu sinni sem einn okkar fór út úr slóða, og þá lét ég hann laga grasið, ég var svo harður á þessu. Ég sagði líka við hóp­inn að ef ein­hver færi út fyrir slóða þá yrði ekki hjólað meira þann dag­inn. Ég er ekk­ert stress­aður yfir þessu, því ég veit að við gerðum ekk­ert rangt."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár