Framkvæmdastjóri Ögurvíkur: Rússar byrjaðir að loka á viðskipti

Hjörtur Gíslason, fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Ögur­víkur, sagði í við­tali við RÚV í gær að rúss­neskir aðilar væru byrj­aðir að loka á við­skipti með mak­ríl gagn­vart íslenskum fyr­ir­tækjum. Það gerð­ist í gær­morgun, og feng­ust þá upp­lýs­ingar um sterkur orðrómur væri um það á mörk­uðum að Rússnesk stjórn­völd ætl­uðu sér að útt­víkka inn­flutn­ings­bann sitt á mat­vælum frá Vest­ur­löndum enn frekar, og þannig að það næði til Íslands, ekki síst vegna stuðn­ings Íslands við hertar póli­tískar og efna­hags­legar aðgerðir gegn Rúss­landi, sem rekja má rekja til póli­tískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkraínu. Hjörtur sagð­ist þakk­látur fyrir að hafa fengið fund með utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um þetta mál, en ótt­að­ist að það yrði ekki hlust­aða nægi­lega á þessar áhyggju­raddir.

Eins og Kjarninn greindi frá í gær var fundað um þessar áhyggjur í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í gær, þar sem hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi, meðal ann­ars Kolbeinn Árnason, fram­kvæmda­stjóri LÍÚ, komu áhyggjum sínum á fram­færi við Gunnar Braga Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra.

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en heild­arutan­rík­is­við­skipti við Rússland í fyrra námu ríf­lega 20 millj­örðum króna. Þar af voru um 18 millj­arðar vegna við­skipta með mak­ríl, en um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem veiddur var við Ísland í fyrra fór inn á Rúss­lands­markað.

Hinn 15. októ­ber birti Evr­ópu­ráðið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedónía, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu,stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rússum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans fór þetta illa í Rússa sem hafa hug á því að loka á við­skipti við þessi ríki, eða í það minnsta bregð­ast við með aðgerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár