Pæling dagsins: Aðkallandi að Bjarni tjái sig um stöðuna

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Það eru merki­legir tímar núna, svo mikið er víst. Líklegt er að það muni skýr­ast í dag, hvernig leyst verður úr 226 millj­arða skuld­bind­ingu milli nýja og gamla Lands­bank­ans. Helst er horft til þess að lengja í lán­inu, en fleiri atriði þurfa að koma til, svo fjár­mála­stöð­ug­leiki sé tryggður. Á sama tíma og þetta mikla hags­muna­mál þjóð­ar­búss­ins er til umfjöll­unar, þá er komin upp gríð­ar­lega snúin staða í heil­brigð­is­kerf­inu. Allar fag­stéttir í heil­brigð­is­kerf­inu hafa snúið bökum saman, með sjúkum og aðstand­endum þeirra, sam­tals 45 sam­tök, og segja ein­fald­lega; hingað og ekki lengra, það er ekki hægt að skera meira niður, for­gangsraðið í þágu heil­brigð­is­mála. Sá sem stendur ekki síst frammi fyrir þessum vanda­málum er Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra. Það er orðið aðkallandi að hann tjái sig ítar­lega um þessar útlínur í efna­hags­málum þjóð­ar­innar og tali til almenn­ings. Skýri málin og stefn­una í rík­is­fjár­málum. Því verður ekki trúað að óbreyttu, að heil­brigð­is­kerfið verði látið taka skell, læknar verði í verk­falli og grafið verði undan mik­il­væg­ustu sam­fé­lags­stofnun lands­ins. Land­spít­al­anum.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár