Útvarpsstjóri sendi starfsmönnum bréf um alvarlega stöðu RÚV

Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri RÚV, og Anna Bjarney Sig­urð­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri rekstrar, fjár­mála og tækni, sendu starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins tölvu­póst í dag, þar sem þau til­taka tíu stað­reyndir varð­andi fjár­hags­lega stöðu RÚV.

Í tölvu­póst­inum, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir: "Mikið hefur verið rætt um RÚV og fjár­hag þess á und­an­förnum vikum. Í umræð­unni hefur borið á því að sumir vilji horfa fram hjá aðal­at­riðum máls­ins og jafn­vel drepa mál­inu á dreif. Af því til­efni viljum við draga hér saman fyrir ykkur þær tíu stað­reyndir sem mik­il­vægastar eru í umræðu um fjár­hags­lega stöðu RÚV."

Stað­reynd­irnar tíu sem eru teknar saman í tölvu­póst­inum eru neð­an­greindar:

1. Skulda­vandi RÚV er ekki nýtil­kom­inn, hann hefur orðið til á löngum tíma og er að mestu fólgin í ára­tuga­gömlum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum.

2. Óháð úttekt PwC á stöðu fjár­mála í maí sl. sýndi að félagið er yfir­skuld­sett og getur ekki staðið undir greiðslum afborg­ana og vaxta af lánum.

3. Með sölu eigna s.s. lóðar og hugs­an­lega Útvarps­húss­ins gerir stjórn RÚV ráð fyrir að skuld­irnar verði greiddar niður að miklu leyti.

4. Frá 2007 hefur verið hag­rætt mjög mikið í rekstri RÚV og starfs­mönnum m.a. fækkað úr 340 í 235 sem er 30,9 % fækkun.

5. Á þessu ári hefur áfram verið hag­rætt í starf­sem­inni en með það að leið­ar­ljósi að verja dag­skrána sjálfa eins og kostur er.

6. Frá 1.jan­úar 2009 hefur ríkið árlega tekið til sín hluta af útvarps­gjald­inu.

7. 85% þeirra sem tóku afstöðu í skoð­ana­könnun Capacent vilja að RÚV fái útvarps­gjaldið óskert og að stjórn­völd ráð­stafi ekki hluta þess annað.

8. Útvarps­gjaldið er mjög svipað að krónu­tölu á hvern ein­stak­ling og þekk­ist ann­ars staðar á Norð­ur­löndum (hjá NRK, DR, YLE og SWT/SWR) , þrátt fyrir smæð mark­að­ar­ins. Það er lægra en á Bret­landseyjum (hjá BBC).

9. Óbreytt útvarps­gjald dugir til að standa undir dag­skrá og bæta dreifi­kerfið, að því gefnu að RÚV fái gjaldið óskert.

10. Hvorki er því þörf á að hækka útvarps­gjaldið frá því sem nú er, né veita sér­stök fjár­fram­lög til RÚV. Það nægir að hafa útvarps­gjaldið óbreytt.

Í nið­ur­lagi tölvu­pósts­ins segir svo: "Starfs­menn og lands­menn allir geta treyst því að stjórn og stjórn­endur munu standa að rekstri Rík­is­út­varps­ins með ábyrgum hætti á næstu árum. Þannig tryggjum við best burði RÚV til að sinna sínu mik­il­væga menn­ingar-, öryggis- og lýð­ræð­is­hlut­verki."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár