"Óskum þess innilega að stjórnvöld forgangsraði í þágu Landspítalans"

Full­trúar 45 sam­taka sendu frá sér sam­eig­in­lega ályktun í dag vegna ástands­ins á Land­spít­al­anum, þar sem lækkun til rekst­urs spít­al­ans, sem birt­ist í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2015, er harð­lega mót­mælt. Álykt­unin verður send á rík­is­stjórn Íslands í dag.

"Við höfum þungar áhyggjur af þróun mála á Land­spít­al­anum," segir Fríða Björk Arn­ar­dóttir for­maður Neistans - styrkt­ar­fé­lags hjart­veikra barna í sam­tali við Kjarnann, en sam­tökin voru á meðal þeirra sem stóðu að fyrr­greindri ályktun.

Verður að endurskoða fjárveitingar til Landspítalans


"Við viljum að Land­spít­al­inn upp­fylli þær kröfur sem gerðar eru almennt til sjúkra­húsa á Norð­ur­lönd­unum og að spít­al­anum verði gert kleift að þró­ast. Við óskum þess inni­lega að rík­is­stjórn­inn end­ur­skoði for­gangs­röðun sína á því hvert pen­ing­arnir í land­inu eiga að fara. Það verður að end­ur­skoða þessa lækkun á fjár­fram­fram­lögum til Land­spít­al­ans, og stjórn­völd verða bara að for­gangs­raða upp á nýtt," segir Fríða Björk.

Hún segir aðstand­endur hjart­veikra barna hafa þungar áhyggjur af fram­tíð­inni. "Við höfum áhyggjur af því að við séum að missa lækn­anna okkar úr landi og það munu ekki að koma inn nýir hjarta­læknar í stað­inn. Við erum með mjög góða lækna í dag, en innan þeirra raða verður auð­vitað að eiga sér stað end­ur­nýjun. Börnin okkar, eins og staðan er í dag, þurfa mikið að sækja aðgerðir erlendis, til Lundar eða Boston, sem hefur reynst vel, en sú staða gæti komið upp að öll börnin þurfi að sækja sér þjón­ustu erlendis, og er það sparn­aður fyrir ríkið?"

Samfélagið hefur lokað augunum fyrir stöðu Landspítalans


Fríða segir sam­fé­lagið hafa lokað aug­unum fyrir alvar­legri stöðu Land­spít­al­ans. "En nú er bara komið nóg. Hvað er hægt að spara mikið án þess að það komi niður á þjóð­fé­lag­inu okkar? Þetta ástand hefur ekki bara áhrif á sjúk­ling­ana okkar, heldur er það líka byrjað að hafa heilsu­spill­andi áhrif á heil­brigð­is­starfs­fólkið okkar sem vinnur á Land­spít­al­anum. Við þurfum auð­vitað að halda þeim hraustum líka svo það geti sinnt sínu starfi."

Fríða segir að óbreyttu muni ástandið fara að bitna veru­lega á skjól­stæð­ingum Neistans. "Það mun gera það, þetta er á þeirri leið að þetta mun hafa áhrif á börnin okkar, og við sjáum ástandið því miður bara vera að stefna í þá átt."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár