Ísland formlega best Norðurlandanna...í fótbolta

Ísland verður í dag, í fyrsta skipti í sögu lands­ins, form­lega besta knatt­spyrnu­lands­lið Norð­ur­landa þegar nýr styrk­leika­listi FIFA verður gerður opin­ber. Á honum mun Ísland verða á meðal 30 bestu knatt­spyrnu­þjóða í heimi og ofar á list­anum en Svíþjóð, Noregur, Danmörk og Finnland.

Þessi staða end­ur­speglar gríð­ar­legan upp­gang og árangur íslenskrar knatt­spyrnu und­an­farin ár sem náði hámarki í umspils­leikj­unum við Króatíu í fyrra og í nán­ast epískri byrjun lands­lið­is­ins í und­an­riðl­unum fyrir Evr­ópu­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu sem fram fer árið 2016. Íslenska liðið hefur þegar lagt Tyrki, Letta og Hol­lend­inga, sem hlutu brons á síð­asta heims­meist­ara­móti. Liðið er í efsta sæti síns rið­ils með níu stig, hefur skorað átta mörk og fengið ekk­ert á sig.

Og nú geta Íslend­ingar, að minnsta kosti í mánuð, núið vinum okkar og frændum frá hinum Norð­ur­lönd­unum því um nasir að lang­minnsta þjóðin í hópnum utan Fær­ey­inga, sem býr á veð­ur­börnum kletti úti í miðju ball­ar­hafi og hefur glímt við alls­konar efna­hags­legt vesen árum saman, er best þeirra allra í knatt­spyrnu.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um upp­gang íslenskrar knatt­spyrnu nýverið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár