Geir segir Framsókn hafa hlaupið á sig í moskumálinu

Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var gestur Unn­steins Manuels Stef­áns­sonar í sjón­varps­þætt­inum Hæpinu, sem sýndur var á RÚV í kvöld. Aðspurður um útspil Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­valla­vina í aðdrag­anda síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga, það er Moskumálið svo­kall­aða, svar­aði Geir: "Ég held að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi hlaupið á sig í því máli. En þeir hafa hins vegar reynt að bjarga sér fyrir horn með það. Mér finnst sjálf­sagt, ef ég segi fyrir sjálfan mig, að allir trú­ar­hópar fái að byggja bæna­hús eða hús fyrir sínar trú­ar­legu athafnir. Mér fannst gæta for­dóma í þessu því miður, og sér­stak­lega hvernig þetta svona var spilað áfram, en ég vona að allir hafi lært sína lexíu á því."

[quote font="0" align="right"]"Mér fannst gæta for­dóma í þessu því miður, og sér­stak­lega hvernig þetta svona var spilað áfram, en ég vona að allir hafi lært sína lexíu á því."[/quote]

Unn­steinn Manuel spurði Geir sömu­leiðis út í grein sem hann skrif­aði í skóla­blað Mennta­skól­ans í Reykavík árið 1968, þegar Geir var sextán ára, sem inni­hélt kyn­þátta­for­dóma. Unn­steinn Manuel spurði Geir sér­stak­lega hvað honum fynd­ist um setn­ing­una: "Það væri fremur óskemmti­legt að að heyra og sjá alls kyns blökku- og múlatta­lýð tala móð­ur­mál vort og telja sig til vorrar þjóðar." Unn­steinn spurði Geir: "Nú er ég hérna mættur alltalandi á íslensku, er þetta eitt­hvað sem að þú sérð eftir?" Þá svar­aði Geir: "Já, já. Þetta er auð­vitað bara óskilj­an­legt að þetta skyldi sko sett á blað fyrir tæp­lega fimm­tíu árum. Þetta eru fárán­leg ummæli og voru það þá og eru það nú og ég nátt­úru­lega bara skamm­ast mín fyrir þau. Og ef ég hef sært eða meitt ein­hvern með því, þig eða ein­hvern annan, þá bara biðst ég afsök­unar á því."

Geir seg­ist hafa velt því fyrir sér hvaðan ummæli sín hafi verið sprott­inn á þessum tíma. "Þetta er óskilj­an­legt fyrir mér. Þetta eru nefni­lega heimsku­pör. Þetta eru heimsku­pör í sextán ára mennta­skóla­strák sem birt­ust í fálesnu skóla­blaði, og af því að þetta eru heimsku­pör þá er eig­in­lega ekki hægt að útskýra þetta. Auðvitað var ég ekki alinn upp við neitt svona, og ég hef ekki alið mín börn þannig upp." Aðspurður um hvort að hann hafi verið hluti af klíku innan Mennta­skól­ans í Reykja­vík sem hafi verið á villi­götum með þjóð­ern­istil­burði, svar­aði Geir: "Ég vil ekki koma þessu yfir á neinn annan, sem ég setti á blað. Það getur vel verið að þetta end­ur­spegli að ein­hverju leyti ein­hvern tíð­ar­anda þarna upp úr 1960 hérna á Íslandi og út um heim, en þetta er nátt­úru­lega hrein enda­leysa og auð­vitað fárán­legt og engum til sóma."

Unn­steinn Manuel gaf svo Geir H. Haarde loka­orðið í þætt­inum. "Hvaða for­dómar sem er eiga hvergi rétt á sér, og það ber að berj­ast gegn þeim eins og menn geta. Það sem er nátt­úru­lega aðal­at­riðið, og allir verða að hafa í huga, að það er ein­stak­ling­ur­inn sjálfur sem skiptir máli. Ekki hvernig hann lítur út, hvaða lit­ar­haft hann er með, hvaða kyn­hneigð hann hefur, eða af hvaða kyn­þætti eða kyni, þetta er ekki það sem skiptir máli. Það skiptir máli hver við­kom­andi er, hvaða per­sónu hann ber og hvernig mann­eskja við­kom­andi er."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár