Apple í hæsta gildi - verðmætasta félag heims

Verðmæti Apple nemur um þessar mundir tæp­lega 620 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 75 þús­und millj­örðum króna, og hefur aldrei verið meira. Þetta gerir Apple að verð­mætasta hluta­fé­lagi heims­ins. Það er upp­hæð sem svarar til meira en fjöru­tíu­faldrar árlegrar lands­fram­leiðslu Íslands. Nýjasta upp­gjör félags­ins kom flestum grein­endum á óvart þar sem það var betra en flestar spár höfðu gert ráð fyrir.

Á þriðja árs­fjórð­ungi þessar árs, sem er raunar fjórði árs­fjórð­ungur í upp­gjörsári Apple, þá seldi fyr­ir­tækið 39,7 millj­ónir iPhone síma og námu heild­ar­tekjur fjórð­ungs­ins 42 millj­örðum Banda­ríkja­dölum, eða sem nemur ríf­lega fimm þús­und millj­örðum króna.

Hér með­fylgj­andi er mynd­band sem tekið var upp á iPhone og sýnt á vef Apple, 24. jan­úar á þessu ári, í til­efni af því að 30 ár voru þá frá því að Apple kynnti fyrstu vör­una, Macintosh tölv­una.

https://www.youtube.com/watch?v=zJahlKPCL9g

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár