Arion banki segir upp 20 manns, lokar á Hólmavík

Arion banki sagði í dag upp 20 starfs­mönnum og til­kynnti að afgreiðslu bank­ans á Hólmavík verði lokað . Áður hafði starfs­fólki bank­ans verið fækkað um 120 frá lokum árs 2009 auk þess sem Arion banki hafði þegar lokað 16 úti­búum á því tíma­bili. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka.

Þar segir að starfs­fólki hafi verið fækkað um 120 frá árs­lokum 2009, og að fækk­unin hafi að mestu náðst fram í gegnum starfs­manna­veltu með þeim hætti að ekki var ráðið aftur í störf sem losna. Bankinn hefur hins vegar líka ráð­ist í stór­felldar upp­sagnir á þessu tíma­bili. Í sept­em­ber 2011 var til að mynda 57 starfs­mönnum sagt upp störfum.

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur:

„Í dag var ráð­ist í frek­ari hag­ræð­ing­ar­að­gerðir innan Arion banka þegar 18 starfs­mönnum var sagt upp störfum. Það er erfitt skref að þurfa að grípa til upp­sagna en nauð­syn­legt til að auka skil­virkni og hag­kvæmni í grunn­rekstri bank­ans. Að auki verður afgreiðslu Arion banka á Hólmavík lokað en við það munu tveir starfs­menn til við­bótar láta af störfum.

Eftir lokun afgreiðsl­unnar á Hólmavík starf­rækir Arion banki 23 útibú og afgreiðslur um land allt. Við­skipta­vinir afgreiðsl­unnar á Hólmavík geta sótt þjón­ustu í útibú bank­ans í Borg­ar­nesi eða hvert það útibú bank­ans sem þeir kjósa, en um helm­ingur við­skipta­vina afgreiðsl­unnar á Hólmavík er með búsetu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár