Adolf: „Vonandi koma svona tímar aldrei aftur“

„Þetta eru búnir að vera miklir anna­tímar og um margt merki­legir. Mig óraði ekki fyrir því þegar ég tók við sem for­maður (LÍÚ), að banka­kerfið myndi hrynja með til­heyr­andi upp­lausn og erf­ið­leikum. Vonandi koma svona tíma aldrei aftur,“ segir Adolf Guð­munds­son, frá­far­andi for­maður Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna, en hann mun form­lega hætta sem for­maður á aðal­fundi félags­ins 31. októ­ber næst kom­andi.

Adolf segir und­an­farin sex ár, þar sem hann hefur verið for­maður, hafa verið merki­lega lífs­reynslu en sjáv­ar­út­veg­inum íslenska hafi þó tek­ist að sýna styrk við erf­iðar aðstæður. Mikill tími hafi farið í umræður um kerf­is­breyt­ingar, veiði­gjöld og ýmis­legt sem teng­ist ytra umhverfi sjáv­ar­út­vegs­ins, á meðan mörg fyr­ir­tæki hafi verið að berj­ast í erf­iðu rekstr­ar­um­hverfi, á meðan betur gekk hjá öðrum. „Þetta hefur verið mjög anna­samur tími, en skemmti­legur. Í það minnsta oft­ast nær,“ segir Adolf.

Adolf, sem er búsettur við Túngötu á Seyð­is­firði, seg­ist vel geta hugsað sér að sinna lög­fræði­störfum þegar hann hættir hjá LÍÚ og einnig hjá fyr­ir­tæk­inu Gull­bergi ehf. en Síld­ar­vinnslan keypti það fyrir skömmu. Þar hefur Adolf verið fram­kvæmda­stjóri og einn hlut­hafa árum saman. Hann vill ekki gefa upp kaup­verðið, segir það trún­að­ar­mál, en að hann hafi lagt áherslu á að það við söl­una að starf­semin yrði áfram á Seyð­is­firði og að starfs­fólkið byggi við öryggi og stöð­ug­leika í tengslum við við­skiptin. „Ég get alveg hugsað mér að sinna lög­fræði­störfum og ýmsu sem þeim teng­ist, en mínum störfum hjá Gull­bergi er ekki lokið enn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár