Norsk sendinefnd bauð ríkislögreglustjóra hríðskotabyssurnar

Norsk sendi­nefnd á vegum þar­lendra varn­ar­mála­yf­ir­valda, sem kom til lands­ins í júní 2013 í boði utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og heim­sótti af því til­efni meðal ann­ars æfinga­að­stöðu lög­regl­unnar á Kefla­vík­ur­flug­velli ásamt full­trúum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og Land­helg­is­gæsl­unnar, ámálg­aði við full­trúa rík­is­lög­reglu­stjóra að lög­regl­unni á Íslandi stæði mögu­lega til boða að fá til eignar MP5 hríð­skota­byssur sem verið væri að afleggja hjá norska hernum.

Þetta segir Jón Bjartmarz yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra í sam­tali við Kjarnann. Jón segir norsk stjórn­völd þannig hafa átt frum­kvæðið að því að afhenda íslenskum lög­reglu­yf­ir­völdum hríð­skota­byss­urnar. Þá segir hann Land­helg­is­gæsl­una hafa haft milli­göngu um afhend­ingu vopn­anna. Hann getur ekki svarað fyrir það hvort Land­helg­is­gæslan hafi fengið vopn sömu­leiðis frá norska hernum. Kjarninn hefur ekki náð tali af Georgi Lárus­syni, for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar, í dag, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Ákvörðunin ekki háð samþykki innanríkisráðherra


Heimsókn norsku sendi­nefnd­ar­innar hingað til lands má rekja til sam­starfs þjóð­anna á vett­vangi varn­ar­mála. Jón Bjartmarz segir Rík­is­lög­reglu­stjóra hafa upp­lýst inn­an­rík­is­ráðu­neytið í júlí 2013 um boðið og fyr­ir­ætl­anir emb­ætt­is­ins hafi svo verið kynntar á fundi með Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra í ágúst 2013.

Jón segir ákvörðun emb­ætt­is­ins, um að þiggja gjöf norska stjórn­valda, ekki hafa verið háða sam­þykki inn­an­rík­is­ráð­herra. Samkvæmt reglum um vald­beit­ingu lög­reglu­manna og með­ferð og notkun vald­beit­ing­ar­tækja og vopna frá 1999, sé emb­ætt­inu í sjálfs­vald sett að taka ákvarð­anir af þessu tagi.

Reglur sem ekki fást opinberaðar


Fyrr­greindar reglur hafa ekki verið gerðar opin­berar. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur stað­fest ákvörðun inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um að synja beiðnum um birt­ingu regln­anna.

Í úrskurði nefnd­ar­innar frá 5. maí síð­ast­liðnum segir: "Í umræddum reglum og skýr­ingum við þær er að finna lýs­ingu á verk­lagi lög­reglu þegar upp koma alvar­leg mál á sviði lög­gæslu þar sem beita þarf valdi. Regl­urnar hafa því að geyma upp­lýs­ingar um skipu­lag lög­gæslu og varða öryggi rík­is­ins. Verði almenn­ingi veittur aðgangur að regl­unum kann það að nýt­ast þeim sem hyggj­ast fremja alvar­leg afbrot og draga úr fæl­ing­ar­mætti lög­regl­unnar. Opin­berun regln­anna myndi því raska almanna­hags­munum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár