Jens Garðar býður sig fram til formanns nýrra LÍÚ-samtaka

Jens Garðar Helgason, for­maður bæj­ar­ráðs Fjarð­ar­byggðar, hyggst bjóða sig fram til for­manns nýrra regn­hlíf­ar­sam­taka í sjáv­ar­út­vegi sem verða til með sam­ein­ingu Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) og Samtaka fisk­vinnslu­stöðva. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Jens Garðari sem birt er á vef LÍÚ. Sam­eig­in­legur aðal­fundur sam­tak­anna fer fram 31. októ­ber en til­laga um sam­ein­ingu félag­anna verður tekin fyrir á fund­inum.

Í til­kynn­ingu segir Jens Garðar að hann sjái mikil tæki­færi í sjáv­ar­út­vegnum. „Íslenskur sjáv­ar­út­vegur er nútíma­leg, hátækni­vædd atvinnu­grein í harðri alþjóð­legri sam­keppni. Það fel­ast mikil tæki­færi í því fyrir sjáv­ar­út­veg­inn að sam­eina fyr­ir­tæki sem starfa að veiðum, vinnslu, sölu- og mark­aðs­setn­ingu sjáv­ar­af­urði í ein, öflug sam­tök. Við þurfum að horfa til fram­tíðar, greina sókn­ar­færin og vinna að efl­ingu og sam­keppn­is­færni sjáv­ar­út­vegs­ins þjóð­inni allri til hags­bóta. Ég vil bjóða fram mína krafta í því starfi sem framundan er og þá reynslu sem ég hef af sjáv­ar­út­vegs­rekstri,“ segir Jens Garðar í til­kynn­ingu.

Jens Garðar er fæddur og upp­al­inn á Eski­firði 1976, stúd­ent frá Mennta­skól­anum á Akureyri og stund­aði nám í við­skipta­fræði í Háskóla Íslands 1997 til 2000.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár