Segir Jón Bjartmarz vega að trúverðugleika lögreglunnar

Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sakar Jón Bjartmarz yfir­lög­reglu­þjón hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra um ósann­indi í umræð­unni um vopna­væð­ingu lög­regl­unnar. Ásak­an­irnar koma fram í pistli sem Ögmundur birti á heima­síðu sinni nú rétt í þessu.

Hann segir Jón Bjartmarz hafa gegnið fram fyrir skjöldu, fyrir hönd ráð­herra og rík­is­lög­reglu­stjóra, í fjöl­miðlum til að rétt­læta ákvarð­anir um að koma hríð­skota­byssum fyrir í almennum lög­reglu­bílum. Þá hafnar Ögmundur ummælum Jóns um að engin eðl­is­breyt­ing á vopna­burði lög­reglu­manna eigi sér stað með þessu, og í raun sé ein­vörð­ungu verið að fram­fylgja því sem komið hafi fram í skýrslu sem gerð hafi verið í ráð­herra­tíð hans.

"Það sem Jón Bjartmarz hefur kallað ,,skýrslu Ögmundar" er sam­an­tekt á stöðu lög­regl­unnar sem byggð er á mati lög­regl­unnar sjálfrar n.t.t. emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá hefur hann vísað í skýrslu þverpóli­tískrar nefndar sem sett var á lagg­irnar til að meta stöðu lög­regl­unnar, fjár­þörf hennar og mann­afla­þörf eftir nið­ur­skurð­inn af völdum efna­hags­hruns­ins en þessi skýrsla kom til umræðu á Alþingi í mars 2013."

Ögmundur segir að hvorki í umræðu né neinum gögnum eða ábend­ingum sem komu fram í hans ráð­herra­tíð sé að finna staf­krók sem gæti gefið for­mæl­endum vopna­væð­ingar lög­regl­unnar minnsta til­efni til að tala á þann veg sem Jón Bjartmarz hafi leyft sér að gera.

Þá segir Ögmundur: "Yfir­lög­reglu­þjón­inum tókst að nefna nafn mitt ófáum sinnum í Kast­ljós­þætti sjón­varps­ins og hefur verið óþreyt­andi í öðrum fjöl­miðlum að bendla nafn mitt sem fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra við málið og gefa þar með í skyn að það sé á mína ábyrgð. Með almennri vopna­væð­ingu sé lög­reglan að bregð­ast við gagn­rýni sem ég hafi sett fram! Mál­futn­ingur emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra byggir hér á útúr­snún­ingi og stað­lausum stöfum. Ég ítreka að þessi kaup og eðl­is­breyt­ing á bún­aði almennu lög­regl­unnar er ekki með mínu sam­þykki. Dylgjur og ósann­inda­mál­flutn­ingur af þessu tagi veikir því miður trú­verð­ug­leika lög­regl­unnar."

Þá segir Ögmundur að innan ráðu­neytis hans og lög­regl­unnar hafi verið þekkt við­horf að hann sé andsnú­inn því að almennir lög­reglu­menn beri vopn. Þar hafi sér­sveit lög­regl­unnar verið und­an­skilin, auk þess sem hann hafi talið eðli­legt að hafa skot­vopn í lög­reglu­bílum í dreifðum byggðum komi til þess að aflífa þurfi skepnur svo dæmi sé tekið. Í þessu máli sé hins vegar um að ræða almenna vopna­væð­ingu íslensku lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár