Hríðskotabyssurnar 150 komu frá norska hernum

Hríð­skota­byss­urnar 150 sem íslenska lög­reglan fékk gef­ins frá Noregi, komu frá norska hernum, ekki norsku lög­regl­unni. Þetta stað­festir Jón Bjartmarz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, í sam­tali við Kjarnann. Norska lög­reglan sótt­ist eftir því að fá byss­urnar sem sendar voru til Íslands, en fékk ekki.

DV greindi frá því í gær­morgun að íslenska lög­reglan hefði keypt fjöl­margar MP5-hríð­skota­byssur frá Noregi. Rík­is­lög­reglu­stjóri og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, dóms­mála­ráð­herra, hafa neitað því að byss­urnar hafi verið keyptar. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, sagði til að mynda að byss­urnar hafi verið gjöf frá Norð­mönnum. Í fjöl­miðlum í gær var því haldið fram að byss­urnar hafi komið frá norsku lög­regl­unni, sem hafi verið að afleggja MP5-byss­unum.

Norska lögreglan vill fá byssurnar


Það er ekki rétt því það er norski her­inn sem er að afleggja byss­unum til að taka upp MP7-hríð­skota­byssur. Þetta stað­festir Jón Bjartmarz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, í sam­tali við Kjarnann. Í frétt norska dag­blaðs­ins Verdens Gang frá því í júlí kemur fram að norska lög­reglan vilji njóta for­gangs þegar kemur að því að yfir­taka aflögð vopn hjá norska hernum. Þörf hennar fyrir vopn hafi auk­ist mikið á und­an­förnum árum.

Í frétt­inni er haft eftir Kaare Songstad, yfir­manni hjá norsku lög­regl­unni, að lög­reglan viti að her­inn eigi fullt af MP5-hríð­skota­bysum á lager. „Hann þarf þær ekki, en við þurfum þær. Þess vegna óskum við eftir að taka yfir stóran hluta af þessum vopnum“.

60 byssur seldar til íslensku Landhelgisgæslunnar?


Í sömu frétt er sagt frá því að mikil eft­ir­spurn sé víða að eftir hríð­skota­byss­unum. Þar er því einnig haldið fram að norski her­inn hafi selt 60 MP5-hríð­skota­byssur til íslensku Land­helg­is­gæsl­unnar. Jón Bjartmarz sagði í Kast­ljósi í gær að land­helg­is­gæslan hafi haft milli­göngu um að íslenska lög­reglan fékk vopn­inn frá Norð­mönnum. Þegar Kjarninn bar frétt­ina undir Jón og hvort Land­helg­is­gæslan hefði keypt byss­urnar, líkt og haldið er þar fram, seg­ist Jón ekki geta svarað fyrir hönd Lands­helg­is­gæsl­unnar. Ekki hefur náðst í Georg Kr. Lárusson, for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar, í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár