Pæling dagsins: Lögreglan hefur einkarétt á ofbeldi

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Davíð Þor­láks­son, hér­aðs­dóms­lög­maður og fyrr­ver­andi for­maður SUS, tjáði sig um byssu­mál lög­regl­unnar á Facebook í gær. Orðrétt sagði Davíð: „Lög­reglan hefur í krafti rík­is­valds­ins einka­rétt á beit­ingu ofbeldis. Þessu valdi á að fylgja ábyrgð og þess vegna verða strangar reglur að gilda um lög­regl­una og hún verður að sæta ströngu eft­ir­liti. Það er því frá­leitt að hún ákveði sjálf í hversu miklum mæli hún hefur aðgang að vopnum og hvenær og hvernig hún beitir þeim. Á sama tíma og verið er að auka aðgang lög­reglu að vopnum er lagt til að settar verði strang­ari reglur um með­ferð veiði­manna á byssum sínum. Ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að þörf sé á þessum aukna vopna­burði lög­regl­unnar eða þessum strang­ari reglum um veiði­menn. Eðli­leg­ast er að Alþingi feli inn­an­rík­is­ráð­herra að setja reglu­gerð þar sem mælt verði fyrir um það hvaða vopn lög­reglan má búa yfir, með hvaða hætti lög­reglan varð­veitir vopn og hvenær og hvernig megi beita þeim.“ Þetta eru góðar pæl­ingar hjá Davíð.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár