Hvalasafnið hefur ekkert heyrt frá stjórnvöldum vegna steypireyðar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti á kjör­dæm­is­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem haldið var á Hall­orms­stað um helg­ina, að beina­grind steypireyðar sem rak á land á Skaga árið 2010 verði flutt til tíma­bund­innar varð­veislu hjá Hvala­safn­inu á Húsavík. Hval­rek­inn heyrir ekki undir mála­flokk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, en Hvala­safnið á Húsavík er í kjör­dæmi for­sæt­is­ráð­herra.

Einar Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Hvala­safns­ins, heyrði af ákvörðun for­sæt­is­ráð­herra í fjöl­miðlum. Hvala­safnið hefur frá árinu 2010 ítrekað sent erindi til ráð­neyta mennta- og umhverf­is­mála þess efnis að það fái beina­grind Steypireyð­ar­innar til varð­veislu. Þeim erindum hefur ekki verið svarað af hálfu stjórn­valda.

Í sam­tali við Kjarnann segir Einar, að enn hafi engin form­leg til­kynn­ing eða stað­fest­ing borist Hvala­safn­inu frá stjórn­völdum, um að beina­grind steypireyð­ar­innar sé á leið til Húsa­víkur. Hann á von á því að erindum safns­ins frá árinu 2010, verði nú form­lega svarað og ákvörðun for­sæt­is­ráð­herra um leið stað­fest.

Samkvæmt rík­is­stjórn­ar­sam­þykkt frá því í ágúst 2010 er það á for­ræði mennta­mála­ráðu­neytis og umhverf­is­ráðu­neytis að ákveða, í sam­ráði við Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands og Nátt­úru­minja­safns Íslands, hvar beina­grindin skuli varð­veitt. Í frétt RÚV í gær, kom fram að hvorki hafi verið haft sam­ráð við Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands né Nátt­úru­gripa­safn Íslands varð­andi ákvörð­un­ina að senda beina­grind­ina Hvala­safn­inu á Húsavík til varð­veislu.

Til þess að koma beina­grind­inni fyrir, hyggst Hvala­safnið reisa nýja 500 fer­metra við­bygg­ingu með tíu metra loft­hæð, en steypireyð­urin er hugsuð sem krúnu­djásn safns­ins. Áætlaður kostn­aður við fram­kvæmd­irnar er um 250 millj­ónir króna. Aðspurður um hvort ákvörð­unin um að Hvala­safn­inu verði afhend beina­grindin tíma­bundið hafi áhrif á fyr­ir­ætl­anir safns­ins, segir Einar Gíslason svo ekki vera. "Við höfum ekk­ert heyrt frá stjórn­völdum vegna máls­ins og því vitum við ekk­ert hvaða skil­málar koma til með að fylgja beina­grind­inni, en ef það er svo að við fáum hana bara tíma­bundið til varð­veislu, þá munum við fara fram á að fá afsteypu af beina­grind­inni áður en við skilum henni aftur, sem þá yrði til sýnis í nýja sýn­ing­ar­salnum," segir Einar í sam­tali við Kjarnann. Stefnt er að því að opna bráða­birgða­sýn­ingu á beina­grind­inni næsta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár