Hagspá ASÍ: Meiri hagvöxtur drifinn áfram af vaxandi einkaneyslu

Horfur í íslensku efna­hags­lífi eru bjart­ari en um langt ára­bil, sam­kvæmt nýrri spá hag­deildar Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Þar segir að framundan sé ágætur vöxtur lands­fram­leiðslu, en spáin gerir ráð fyrir að hag­vöxtur hér á landi verði 3,1 til 3,5 pró­sent fram til árs­ins 2016. Hag­vöxtur verði 3,1 pró­sent á þessu ári, 3,3 pró­sent á næsta ári og 3,5 pró­sent árið 2016.

Skuldaniðurfellingar og skattkerfisbreytingar kynda undir einkaneyslu


Samkvæmt spánni verður vöxtur einka­neyslu á bil­inu 3,4 til 4,3 pró­sent og vex í takt við batn­andi stöðu heim­il­anna, en gert er ráð fyrir að kaup­máttur launa vaxi, skuldir lækki og vænt­ingar almenn­ings verði góðar. Samhliða þessu muni skulda­nið­ur­fell­ingar stjórn­valda og skatt­kerf­is­breyt­ingar, ýta undir tölu­verðan vöxt einka­neysl­unnar á tíma­bil­inu, eða 3,7 pró­sent á ári að jafn­aði.

Í hag­spá ASÍ segir orð­rétt. "Þannig eru for­sendur fyrir frek­ari aukn­ingu einka­neysl­unnar á næstu miss­erum þar sem fyrr­nefndir þættir, auk skulda­lækk­un­ar­að­gerða stjórn­valda, frek­ari heim­ilda til úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði á þessu ári og afnáms vöru­gjalda, verða meg­in­drif­kraftar auk­innar neyslu. Þrátt fyrir ágætan vöxt und­an­farið er einka­neyslan engu að síður mun minni en á
árunum 2007–2008 og á fyrri hluta þess árs var einka­neysla svipuð og á fyrri helm­ingi árs­ins 2005. Þannig er lík­legt að heim­ilin nýti bætt­fjár­hags­legt svig­rúm til að auka neyslu á var­an­legri neyslu­vörum á kom­andi árum en þá þróun má greina nú þegar í veltu­tölum smá­söl­unnar."

Hagdeild ASÍ spáir því að einka­neysla auk­ist um 4,3 pró­sent á þrssu ári og búast megi við svip­aðri aukn­ingu út spá­tím­ann eða 3,5 pró­sent á næsta ári og 3,4 pró­sent árið 2016.

Þá gerir spáin ráð fyrir að fjár­fest­ingar muni taka við sér og aukast á tíma­bil­inu um 14,8 til 17,2 pró­sent, en gert er ráð fyrir að ráð­ist verði í bygg­ingu þriggja nýrra kís­il­verk­smiðja og íbúð­ar­fjár­fest­ing auk­ist um rúm 20 pró­sent á ári. Gangi spáin eftir fer hlut­fall fjár­fest­inga af lands­fram­leiðslu yfir 20 pró­sent á árinu 2016 og atvinnu­leysi minnka.

Vaxandi verðbólga áhyggjuefni


ASÍ hefur þó áhyggjur af því að verð­bólga fari vax­andi og spáir því að hún verði yfir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands næstu tvö árin og því megi búast við því að Seðla­bank­inn bregð­ist við með því að hækka vexti. Þá segir í spánni að þrátt fyrir að dragi úr atvinnu­leysi og atvinnu­þát­taka auk­ist, virð­ist meira atvinnu­leysi en þekkt­ist fyrir hrun vera að festa sig í sessi hér á landi. Spá ASÍ gerir ráð fyrir 3,7 pró­senta atvinnu­leysi á þessu ári, og 3,5 pró­senta atvinnu­leysi á ári að jafn­aði út spá­tím­ann.

Þrátt fyrir batn­andi stöðu eru ýmsir und­ir­liggj­andi veik­leikar í íslenska hag­kerf­inu, sem brýnt er að taka á að mati ASÍ. Gjald­eyr­is­höftin séu enn til staðar og ekki miklar líkur á að þau hverfi í bráð. Ekkert bóli á til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar um gengis- og pen­inga­mála­stefnu sem áttu að liggja fyrir í byrjun sum­ars. "Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hversu skað­legt það er að ekki liggi fyrir stefna í þessum lyk­il­þáttum efna­hags­lífs­ins sex árum eftir hrun. Þá er útlit fyrir að hag­vöxtur verði nú bor­inn uppi af vexti þjóð­ar­út­gjalda í stað þess að útflutn­ingur dragi vagn­inn," eins og stendur orð­rétt í hag­spá ASÍ.

Versnandi vöruskiptajöfnuður við útlönd


Spáin gerir því ráð fyrir að jöfn­uður á við­skiptum við útlönd versni á kom­andi árum. Þrátt fyrir að rík­is­sjóður verði rek­inn með afgangi sé ekki sjá­an­legt að rík­is­fjár­málin muni styðja við það sem hljóti að vera eitt helsta markið efna­hags­stjórn­ar­innar, að við­halda stöð­ug­leika. "Þvert á móti virð­ast stjórn­völd ætla að gera sömu hag­stjórn­ar­mis­tök og gerð voru á árunum fyrir hrun þegar rík­is­fjár­málin unnu bein­línis gegn við­leitni Seðla­bank­ans til að koma á stöð­ug­leika. Þá má gera ráð fyrir að sú hrina launa­leið­rétt­inga, sem hófst í upp­hafi árs, muni halda áfram þannig að taktur launa­breyt­inga verði svip­aður næstu árin og á yfir­stand­andi ári."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár