Lögreglustjórarnir ráða för þegar kemur að byssunum

„Lög­reglu­stjór­arnir í hverju umdæmdi fyrir sig ráða því hvar skot­vopnin eru geymd. Það er ekk­ert nýtt að lög­reglan eigi skot­vopn, en á und­an­förnum árum hefur það færst í vöxt að lög­reglan sé með skot­vopn til taks í bif­reiðum,“ segir Jón Bjartmarz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti Rík­is­lög­reglu­stjóra.

DV greinir frá því í dag að sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins þá muni MP 5 hríð­skota­byssur og Glock 17 hálf­sjálf­virk skamm­byssa verða til taks í öllum lög­reglu­bif­reiðum fram­vegis.

Jón segir að það sé orðum aukið, að vopnin verði til taks í öllum bif­reiðum, heldur hafi lög­reglu­stjórar það í hendi sinni hvort vopnin verði í bif­reiðum eða geymd á lög­reglu­stöðvum.

Í DV kemur enn fremur fram að um 200 lög­reglu­menn hafi sótt nám­skeið á dög­unum til þess að þjálfa með­ferð skot­vopna við störf. Jón segir að það sé ekk­ert laun­ung­ar­mál að lög­reglan vilji auka færni lög­reglu­manna þegar kemur að með­ferð skot­vopna. Því miður sé það nauð­syn­legt, að hans sögn, og í takt við kröfur sem gerðar eru til lög­reglu­manna. „Þessi við­bót­ar­fjár­veit­ing sem fékkst til þess að end­ur­nýja vopna­eign lög­regl­unnar, hefur ekki farið í að kaupa vopn eða vopna­væða lög­regl­una frekar, nema þá lítið eitt. Breyt­ingin hefur sem hefur orðið er helst sú, að það er verið að efla færni lög­regl­unnar þegar kemur að með­ferð skot­vopna,“ segir Jón Bjartmarz.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár