Landspítalinn á ekki til tilraunalyf við ebólu-veirunni

Hjá Land­spít­al­anum eru ekki til nein til­rauna­lyf við ebólu-veirunni, en sum þeirra eru sögð hafa orðið ebólu-smit­uðum til lífs. Ástæða þess að spít­al­inn hefur enn ekki fal­ast eftir til­rauna­lyfj­unum er sú, að virkni þeirra hefur ekki verið stað­fest með óyggj­andi hætti.

Norsk hjúkr­un­ar­kona, sem smit­að­ist af ebólu í Síerra-Leóne, og hefur náð heilsu er sögð hafa fegnið til­rauna­lyfið ZMapp við veirunni á Ulleval sjúkra­hús­inu í Ósló. Fjöl­miðlar sögðu frá því í byrjun októ­ber, að Norðmenn hefðu fengið síð­asta skammt­inn af lyf­inu, en langan tíma taki að fram­leiða það. Þá hefur spænskur hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem smit­að­ist af ebólu-veirunni í Vestur-Afríku, sömu­leiðis náð bata en hann fékk blóð­vökva frá trú­boða frá Miðbaugs-Gíneu sem náði að vinna bug á veirunni.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum eru þar til staðar lyf sem notuð eru til með­höndl­unar á öðrum veiru­sýk­ingum, svo sem alnæmi. Þau hafa í ein­hverjum til­fellum gef­ist vel við með­höndlun ebólu­smit­aðra. Þegar og ef ebólu-smit­aður sjúk­lingur komi til með­höndl­unar á spít­al­anum verði tekin ákvörðun um hvort óskað verði eftir til­rauna­lyfjum við veirunni. Þá verði stuðst við nýj­ustu upp­lýs­ingar um virkni lyfj­anna, sem breyt­ast ört dag frá degi. Fram að því verði gripið til stoð­með­ferða, svo sem blóð- og vökva­gjafa.

Sérstakt við­bragð­steymi Land­spít­al­ans vegna ebólu far­ald­urs­ins, hefur æfingar í dag. Spít­al­inn biðl­aði til heil­brigð­is­starfs­fólks innan spít­al­ans að gefa kost á sér í þrjá­tíu manna teymi. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum hefur bróð­ur­partur teym­is­ins verið mann­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár