Pæling dagsins: Himinháar kröfur gætu beinst að ríkissjóði

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Embætti sér­staks sak­sókn­ara er undir álagi um þessar mundir, svo mikið er víst. Ekki nóg með að fjár­veit­ingar til emb­ætt­is­ins verði skornar veru­lega niður, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2015, þá eru dóm­stólar ekki að taka undir mat sak­sókn­ara emb­ætt­is­ins þegar kemur að meintum glæpum banka­manna í öllum til­fellum. Í það minnsta er það raunin í tveimur málum sem hafa beinst að Sig­ur­jóni Þ. Árnasyni, fyrr­ver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans og Sigríði Elínu Sig­fús­dóttur fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans. Þau hafa í tvígang verið sýknuð í hér­aði. Ef að þau Sigurjón og Sigríður Elín verða ekki sak­felld fyrir neinar sakir, þegar upp verður staðið, er ljóst að him­in­háar skaða­bóta­kröfur geta beinst að rík­is­sjóði, enda hafa þau verið árum saman á saka­manna­bekk og til rann­sóknar fyrir meinta efna­hags­brota­glæpi. Það má þó ekki gleyma því að Hæsti­réttur mun vafa­lítið eiga síð­asta orðið í flestum þess­ara mála, þó nið­ur­stöð­unni í mál­inu frá því í gær hafi ekki enn veri áfrýjað til Hæsta­réttar.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár