Leiguverð hækkar og hækkar og hækkar

Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 138,57 stig í sept­em­ber 2014 (jan­úar 2011=100) og hækk­aði um 0,7% frá fyrri mán­uði. Síð­ast­liðna þrjá mán­uði hækk­aði vísi­talan um 3,6% og síð­ast­liðna 12 mán­uði hækk­aði hún um 6,7%, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fast­eigna­skrá rík­is­ins. Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sýnir breyt­ingar á vegnu með­al­tali fer­metra­verðs.

Hæst er leigu­verðið vestan Kringlu­mýr­ar­brautar og Sel­tjarn­ar­ness, en þar er fer­metra­verðið fyrir tveggja her­bergja íbúð 2.458 krónur. Fyrir þriggja her­bergja íbúð á fyrr­nefndu svæði er kostn­að­ur­inn tæp­lega 2.100 krónur á fer­metr­ann að með­alti.

Spurn­ingin um hvort það er hag­stæð­ara að leigja eða kaupa íbúð brennur á mörgum þessa dag­ana. Ljóst er að greiðslu­byrði af hefð­bundnu 25 eða 40 ára hús­næð­is­láni með 80 pró­sent veð­hlut­falli er í flestum til­vikum langt undir leigu­verði sömu íbúðar, hvort sem kosið er að taka verð­tryggt eða óverð­tryggt. Þetta á sér­stak­lega við um eignir sem eru mið­svæðis í Reykja­vík. Hins vegar geta aðrar for­sendur ráðið því hvort það getur verið skyn­sam­legt fyrir fólk að kaupa eða leigja. Til dæmis áform um að dvelja í stuttan tíma á til­teknum svæðum eða önnur per­sónu­leg atriði sem hafa áhrif á ákvörð­un­ina í hverju til­viki fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár