Allt í lagi með Kamal og Póra, en ekki Clinton og Hector

Manna­nafna­nefnd rík­is­ins hefur sam­þykkt karl­mannsnöfnin Kamal og Póri en hafn­aði nöfn­unum Clinton og Hector. Nefndin hafn­aði sam­tals tíu nöfnum en hún felldi úrskurð í fimmtán málum þann 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. Frétta­vef­ur­inn Vísir greindi fyrst frá þessu í dag. Kvenn­manns­nafnið Aríela var líka sam­þykkt sem og karl­manns­nafnið Mark.

Nefndin hafn­aði þremur karl­mannsnöfnum til við­bótar við Clinton og Hector. Karma, Sveinnóli og Duane. Kven­mannsnöfn­unum Lady og Kaia var einnig hafnað, að því er fram kemur í úrskurðum nefnd­ar­innar.

Samkvæmt lögum þarf þrjú skil­yrði til að hægt sé að sam­þykkja nýtt eig­in­nafn og færa það á manna­nafna­skrá: (1) Eig­in­nafn skal geta tekið íslenska eign­ar­falls­end­ingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt mál­kerfi. (3) Það skal ritað í sam­ræmi við almennar rit­reglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rit­hætti þess.

Úrskurðir Manna­nafna­nefndar hafa oft verið umdeildir, enda oft ekki aug­ljóst hvernig þessi þrjú skil­yrði geta verið leið­bein­andi í mörgum til­vikum um hvað má og hvað má ekki þegar kemur að manna­nöfnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár