Rúmlega 24 milljónir úr ríkissjóði til lögmanna

Mál­skotn­aður í máli sér­staks sak­sókn­ara gegn Sig­ur­jóni Þ. Árnasyni og Sigríði Elínu Sig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi banka­stjóra og fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, fellur allur á rík­is­sjóð en þau voru sýknuð af ákærum um umboðs­svik í morgun. Samtals eru það 18,1 milljón króna til Sigurðar, lög­manns Sig­ur­jóns, og tæp­lega sex millj­ónir til Helgu Melkorku Ótt­ars­dóttur hrl., lög­mann Sigríðar Elínar, eða sam­an­legt um 24 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar þá nemur þessi mál­kostn­aður sem lendir á rík­is­sjóði í mál­inu, verði þessi nið­ur­staða end­an­leg, tæp­lega 8,2 pró­sentum af heild­ar­fjár­veit­ingu rík­is­sjóðs til emb­ættis sér­staks sakskókn­ara á næsta ári.

Samkvæmt fjár­lögum, sem nú eru til umræður á Alþingi, verða það um 292 millj­ónir króna, og hefur Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, sagt að verði það heild­ar­fjár­magnið fyrir næsta ár þá muni rann­sókn á tugum mála verða hætt og starfs­fólki sagt upp störfum.

Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá því í morgun, í máli sér­staks sak­sókn­ara gegn Sig­ur­jóni og Sigríði Elínu, er mála­til­bún­aði ákæru­valds­ins algjör­lega hafnað og ekki talið að emb­ætt­inu hafi tek­ist að sanna neitt af því sem ákært er fyrir.

Samkvæmt ákærunni sam­þykktu og und­ir­rit­uðu Sigurjón og Elín sjálf­skulda­á­byrgðir Lands­bank­ans á lána­samn­inga Kaup­þings við tvö félög án utan­að­kom­andi trygg­ina, þann 4. júlí árið 2006, fyrir hönd Lands­bank­ans. Félögin sem um ræðir voru Empennage Inc. og Zimham Corp., sem bæði voru skráð á Panama. Sjálf­skulda­á­byrgð­irnar hljóð­uðu sam­tals upp á 6,8 millj­arða króna, en lán Kaup­þings til félag­anna voru tryggð með veði í Lands­bank­anum að nafn­verði fyrir sam­tals 332 millj­ónir króna. Ákært var fyrir umboðs­svik.

Í dómi hér­aðs­dóms í mál­inu, þar sem Guðjón Mart­eins­son var dóm­ari, segir orð­rétt:

„Ásetn­ingur er sak­næm­is­skil­yrði sam­kvæmt 249. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Þegar allt er virt er það mat dóms­ins að ekki sé upp­fyllt sak­næm­is­skil­yrði 249. gr. almennra hegn­ing­ar­laga að því er varðar mis­notkun á aðstöðu. Verða ákærðu því ekki talin hafa haft ásetn­ing til þess að mis­nota aðstöðu sína enda hefur ekk­ert annað komið fram en að ákærðu hafi aðeins haft hag bank­ans að leið­ar­ljósi við ábyrgð­ar­veit­ing­una [...] Um fjár­tjóns­hættu og að ákærðu hafi stefnt fjár­munum bank­ans í veru­lega hættu er vísað til sömu sjón­ar­miða sem rakin voru í ákæru­lið 1. Því til við­bótar er vísað til fram­burðar ákærða Sig­ur­jóns sem hann hefur stutt eigin útreikn­ingum um áhættu­stöðu bank­ans og til vitn­is­burðar Hauks Þórs Har­alds­sonar. Á sama hátt og lýst var í ákæru­lið 1 hefur ákæru­valdið ekki aflað full­nægj­andi sönn­un­ar­gagna um fjár­tjóns­hættu.“

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort mál­inu verður áfrýjað til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár