Sigurður G: Aðför sem nær ekki nokkurri átt

Sigurður G. Guð­jóns­son hrl., lög­maður Sig­ur­jóns Þ. Árna­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans, segir nið­ur­stöð­una frá því í morgun, þar sem Sigurjón var sýkn­aður af ákæru um umboðs­svik, ekki hafa komið á óvart. Hann segir „aðför“ ákæru­valds­ins á hendur honum ekki ná nokk­urri átt. „Ég hef alltaf verið full­viss um að Sigurjón væri sak­laus. Hann hefur svarað öllum spurn­ingum sér­staks sak­sókn­ara, vísað á gögn og skýrt það sem kallað hefur verið eftir. Á hann hefur ein­fald­lega ekki verið hlustað, en það er jákvætt að dóm­stólar skuli gera það. Það hefur aldrei verið neinn grund­völlur fyrir refsi­máli á hendur Sig­ur­jóni,“ segir Sigurður.

Eins og greint var frá í morgun voru Sigurjón, og Sigríður Elín Sig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­vík. Þau voru ákærð fyrir umboðs­svik upp á 13,6 millj­arða króna. Ætluð brot þeirra, sem þau hafa nú verið sýknuð af, vörð­uðu allt að sex ára fang­elsi.

Sigurjón og Sigríður Elín hafa nú tví­vegis verið sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, fyrst í IMON-mál­inu svo­kall­aða, og síðan núna í meintu umboðs­svika­máli. Af þeim þremur málum sem Sigurjón hefur verið ákærður vegna liggja nú fyrir tveir sýknu­dómar í hér­aði, og hefur það þriðja, þar sem Sigurjón er ákærður ásamt fleirum fyrir mark­aðs­mis­notkun, verið dóm­tekið.

Sigurður segir að málin megi rekja til kæru frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME). „Málið má rekja til kæru frá FME í tíð Gunnars Andersen sem for­stjóra. Sigurjón hefur marg­farið yfir málin í yfir­heyrslum og gefið skýr­ingar á því sem spurt er út í, þar á meðal kaup­rétt­ar­kerf­inu sem sett var upp í bank­anum áður en Sigurjón hóf þar störf, en þá var Gunnar Andersen þar sem starfs­maður og kom að upp­setn­ingu á kaup­rétt­ar­kerf­inu. Nú er búið að sýkna í þessum tveimur málum í hér­aði, og öðru þeirra hefur verið skotið til Hæsta­réttar. Nú er bara að takast á við fram­haldið í þessum málum, en þessi nið­ur­staða hlýtur að valda Jóhönnu (Sig­urð­ar­dóttur) og Stein­grími (J. Sig­fús­syni) miklum áhyggjum. Það er búið að hund­elta Sigurjón árum saman, og hann úttal­aður sem glæpa­maður, þrátt fyrir að ekki sé neinn fótur fyrir slíkum ásök­unum. En sýknu­dómar í málum gegn honum koma mér ekk­ert á óvart og eru algjör­lega í takt við mína sann­fær­ingu. Það verður svo að koma í ljós hvað Hæsti­réttur gerir,“ sagði Sigurður.

Ekki liggur enn fyrir hvort sér­stakur sak­sókn­ari hyggst áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár