Pæling dagsins: Byr í segl ríkisstjórnarinar ef vel gengur

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra stendur nú í stór­ræðum. Fjár­lögin fyrir árið 2015 bíða sam­þykkis þings­ins fyrir ára­mót, og svo virð­ist sem aðstæður til þess að rýmka eða afnema fjár­magns­höftin séu fyrir hendi, sam­kvæmt mati Seðla­banka Íslands. Á næstu vikum og mán­uðum gæti því dregið til tíð­inda. Samhliða þessu gæti eign­ar­hald á fjár­mála­kerfi breyst. Óháð öllu öðru þá er ljóst að rík­is­stjórnin hefur tæki­færi til þess að skapa Íslandi efna­hags­leg skil­yrði sem munu setja mark sitt á það hvernig land­inu mun reiða af á næstu árum og ára­tugum. Ákvörðun um rýmkun fjár­magns­hafta og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins er það stór ákvörðun. Ef þetta heppn­ast vel, þá mun skap­ast mik­ill byr í segl rík­is­stjórn­ar­innar eftir nokkuð erf­iða tíma að und­an­förnu. Vonandi mun rík­is­stjórnin þó passa sig á því að ganga ekki of hratt um gleð­innar dyr...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár