Dómsuppsaga í máli Sigurjóns og Elínar í héraðsdómi í dag

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kveður í dag upp dóm sinn í máli Sérstaks sak­sókn­ara á hendur Sig­ur­jóni Þ. Árnasyni, fyrr­ver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans, og Sigríði Elínu Sig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, þar sem þau eru ákærð fyrir umboðs­svik upp á 13,6 millj­arða króna. Meint brot þeirra varða allt að sex ára fang­elsi.

Sigurjón og Elín, sem bæði áttu sæti í lána­nefnd Lands­bank­ans, eru sögð hafa mis­notað aðstöðu sína og stefnt fé bank­ans í veru­lega hættu með því að fara út fyrir heim­ildir til veit­ingar ábyrgða. Með því hafi þau brotið lána­reglur Lands­bank­ans. „Óhjá­kvæmi­legt er að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stór­felld,“ segir í ákæru emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara.

Sjálfskuldarábyrgðir án nokkurra trygginga


Samkvæmt ákærunni sam­þykktu og und­ir­rit­uðu Sigurjón og Elín sjálf­skulda­á­byrgðir Lands­bank­ans á lána­samn­inga Kaup­þings við tvö félög án utan­að­kom­andi trygg­ina, þann 4. júlí árið 2006, fyrir hönd Lands­bank­ans. Félögin sem um ræðir voru Empennage Inc. og Zimham Corp., sem bæði voru skráð á Panama. Sjálf­skulda­á­byrgð­irnar hljóð­uðu sam­tals upp á 6,8 millj­arða króna, en lán Kaup­þings til félag­anna voru tryggð með veði í Lands­bank­anum að nafn­verði fyrir sam­tals 332 millj­ónir króna.

Þá er þeim Sig­ur­jóni og Elínu sömu­leiðis gefið að sök að hafa sam­þykkt og und­ir­ritað sjálf­skuld­ar­á­byrgð Lands­bank­ans á lána­samn­ing Kaup­þings, dag­settan 29. júní 2007, við félagið Empennage Inc, fyrir 6,8 millj­arða króna, en umrædd ábyrgð var veitt án utan­að­kom­andi trygg­inga.

Meint brot varða allt að sex ára fangelsi


Fyrr­greinar sjálf­skulda­á­byrgðir voru veittar vegna lán­veit­inga Kaup­þings til kaupa félag­anna, Empannage og Zimham, á hluta­bréfum í Lands­bank­anum. Kaupþing lýsti rúm­lega tíu millj­arða króna kröfu í þrotabú Lands­bank­ans í októ­ber 2009 á grund­velli sjálskulda­á­byrgða Lands­bank­ans. Slita­stjórn Lands­bank­ans hafn­aði kröf­unni.

Meint brot Sig­ur­jóns og Elínar varða 249. grein almennra hegn­ing­ar­laga. Hún er svohljóð­andi: „Ef maður, sem fengið hef­ur aðstöðu til þess að gera eitt­hvað, sem ann­ar maður verður bund­inn við, eða hef­ur fjár­reiður fyr­ir aðra á hendi, mis­not­ar þessa aðstöðu sína, þá varðar það fang­elsi allt að 2 árum, og má þyngja refs­ing­una, ef mjög mikl­ar sak­ir eru, allt að 6 ára fang­elsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár