Aðeins ein kona í yfirmannsstöðu hjá lögreglunni í fyrra

Þann 1. febr­úar í fyrra voru 683 lög­reglu­menn, þar með taldir hér­aðs­lög­reglu­menn og afleys­inga­menn, starf­andi í lög­regl­unni. Þar af voru 87 konur, eða 12,7 pró­sent allra lög­reglu­manna. Hlutfall kvenna innan lög­regl­unnar hækk­aði um eitt pró­sentu­stig á milli ára. Þetta kemur fram í árlegri sam­an­tekt um jafn­rétt­is­mál lög­regl­unnar fyrir árið 2013.

Þá kemur fram í sam­an­tekt­inni að af fimm­tíu yfir­lög­reglu­þjónum og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónum var aðeins ein kona, en hún gegndi stöðu aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóns. Af 35 aðal­varð­stjórum var sömu­leiðis aðeins ein kona starf­andi, eða 2,9 pró­sent þeirra, og af 135 varð­stjórum voru ein­ungis sjö konur starf­andi, eða 5,2 pró­sent. Hlutfall kvenna var hæst meðal lög­reglu­full­trúa, eða 18,9 pró­sent, en af 90 lög­reglu­full­trúum voru 17 konur starf­andi. Af 114 rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum voru 18 þeirra konur, eða 15,8 pró­sent, en flestar konur voru starf­andi sem almennir lög­reglu­menn, eða 38 konur af 228 lög­reglu­mönnum, hlut­fall kvenn­anna þar var því 16,7 pró­sent.

Við vinnslu sam­an­tekt­ar­innar bár­ust aðeins upp­lýs­ingar frá tíu lög­reglu­emb­ættum á lands­vísu af átján. Í upp­lýs­ing­unum kemur meðal ann­ars fram að af þeim 40 starfs­mönnum sem sátu í yfir­stjórn þess­ara tíu lög­reglu­emb­ætta, voru níu konur eða 22,5 pró­sent, á mótii 31 karli (77,5 pró­sent). Af 530 lög­reglu­mönnum voru 463 karlar í fullu starfi (87,4 pró­sent) á móti 67 konum, eða 12,6 pró­sent. Ekki var til­kynnt um neitt til­vik ein­eltis eða kyn­ferð­is­legrar áreitni á árinu 2013 sam­kvæmt upp­lýs­ingum fyrr­greindra tíu lög­reglu­emb­ætta.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra sagði fyrir tæpu ári síðan að lágt hlut­fall kvenna í lög­regl­unni væri áhyggju­efni. Í byrjun júlí skor­aði svo Kvenn­rétt­inda­fé­lag Íslands á Rík­is­lög­reglu­stjóra að fjölga konum innan lög­regl­unnar, og þá sér­stak­lega í yfir­manns­stöður innan emb­ætt­is­ins. Í apríl var önnur konan gerð að aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni, og gegna því tvær konur stöð­unni í dag. Þá skip­aði inn­an­rík­is­ráð­herra Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur í stöðu lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í lok júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár