Tíu þekkt einkennismerki með földum skilaboðum

Mörg ein­kenn­is­merki hafa verið hönnuð þannig að þau inni­halda falin skila­boð, og mörg þeirra eru meira að segja ansi sniðug. Sagan á bak­við FedEx ein­kenn­is­merkið er fræg, en ef þú hefur ekki lesið hana, lestu þá þetta. En ein­kenn­is­merki FedEx er alls ekki eina ein­kenn­is­merkið sem inni­heldur falin skila­boð, hér að neðan eru nokkur dæmi.

[caption id="attachment_9930" align="alignnone" width="1218"] Ein­kenn­is­merki Frakk­lands­hjól­reið­anna, eða Tour de France, er snið­ugt. Þar má sjá hjól­reiða­mann út úr bók­stöf­unum U og R og guli hnött­ur­inn, sem margir hafa viljað meina að sé sól, er reið­hjóla­dekk.[/caption]

[caption id="attachment_9929" align="alignnone" width="1551"] Margir hafa eflaust gætt sér á Tobler­one súkkulaði án þess að gefa ein­kenn­is­merki súkkulaðs­ins mik­inn gaum. Í merki Tobler­one er nefni­lega að finna dans­andi björn. Sérðu hann?[/caption]

[caption id="attachment_9928" align="alignnone" width="2000"] Ein­kenn­is­merki Sony Vaio far­tölvanna sam­anstendur af raf­magns­bylgju og tölu­stöf­unum 1 og 0, til að merkja staf­ræna miðlun.[/caption]

[caption id="attachment_9927" align="alignnone" width="1600"] Ein­kenn­is­merki sam­fé­lags­mið­ils­ins Pinter­est inni­heldur teikni­bólu í upp­hafi merk­is­ins, enda mark­miðið að festa á spjald sniðuga hluti sem not­endur mið­ils­ins finna á ver­ald­ar­vefnum.[/caption]

[caption id="attachment_9926" align="alignnone" width="3400"] Í ein­kenn­is­merki Gillette rak­véla­fram­leið­and­ans má sjá hvernig bók­stafirnir G og I hafa verið skorin beitt, til að sýna fram á nákvæman rakstur.[/caption]

[caption id="attachment_9925" align="alignnone" width="2200"] FedEx póst­dreif­inga­fyr­ir­tækið skartar snjöllu ein­kenn­is­merki. Þar má sjá ör á milli bók­staf­anna E og X til að tákna hreyf­ingu og dýnamík fyr­ir­tæk­is­ins.[/caption]

[caption id="attachment_9924" align="alignnone" width="1280"] Dekkja­fram­leið­and­inn Continental skartar heldur lát­lausu ein­kenn­is­merki. En þegar betur er að gáð mynda bók­stafirnir C og O dekk.[/caption]

[caption id="attachment_9923" align="alignnone" width="1466"] Tölvu­fyr­ir­tækið Cisco var stofnað í San Francisco, og þaðan er nafn fyr­ir­tæk­is­ins dregið. Auk þess má sjá hvernig lóð­réttu lín­urnar í ein­kenn­is­merk­inu eiga að standa fyrir hina sögu­frægu brú Golden Gate.[/caption]

[caption id="attachment_9922" align="alignnone" width="820"] Ískeðjan Baskin Robbins stærir sig af 31 bragð­teg­und. Tölunni 31 hefur verið listil­lega smeygt inn í ein­kenn­is­merki fyr­ir­tæk­is­ins.[/caption]

[caption id="attachment_9919" align="alignnone" width="3000"] Gula örin undir ein­kenn­is­merki Amazon nær frá A til Z til að und­ir­strika vöru­úr­val smá­söluris­ans. Þá hefur örin verið beygði lít­il­lega þannig að hún virkar eins og bros.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár