Pæling dagsins: Innovation House í fleiri sveitarfélögum?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Kjarninn heim­sótti hinn magn­aða stað Innovation House á Eiðis­torgi á Sel­tjarn­ar­nesi á dög­unum. Þar blómstrar nýsköp­un­ar­starf og frum­kvöðlar að störfum. Sel­tjarn­ar­nes­bær á hrós skilið fyrir að hafa unnið að þessu verk­efni með Jóni Von Tetzchner, fjár­festi og stofn­anda Opera, en hann á frum­kvæðið að þessu frum­kvöðla­setri. Önnur bæj­ar­fé­lög mættu taka sér þetta setur til fyr­ir­myndar og aðkomu Sel­tjarn­ar­nes­bæjar að því. Velta má því upp hvort þetta skili sér ekki marg­falt til baka út í hag­kerfið. Nú þegar eru nokkur fyr­ir­tæki sem hafa verið að störfum í Innovation House farin að láta að sér kveða og ráða fólk í vinnu. Virki­lega jákvætt og spenn­andi verk­efni!

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár