Upplýsingar sem vörðuðu markaðinn

Stjórn Eimskips til­kynnti ekki Kaup­höll­inni um að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hefðu verið kærðir til Sérstaks sak­sókn­ara af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, fyrir meint sam­keppn­islaga­brot, fyrr en í sept­em­ber. Stjórn­endur Eimskips voru hins vegar upp­lýstir um til­urð kærunnar í sumar.

Gengi bréfa í Eim­skipum hefur fallið um 6,5 pró­sent frá því að Kastljós RÚV greindi frá meintum sam­keppn­islaga­brotum félags­ins og Samskipa. Alls hefur mark­aðsvirði Eimskipa fallið um þrjá millj­arða króna á þremur dögum.

Verðfallið áyggjuefni


Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru fyr­ir­ferð­ar­miklir á meðal hlut­hafa Eimskips. Þannig á Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna 14,57 pró­senta hlut, hlutur Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins nemur 11,19 pró­sentum og fleiri líf­eyr­is­sjóðir eiga minni hlut. Helgi Magn­ús­son, vara­for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, segir Eimskip ekki hafa upp­lýst sjóð­inn um fyrr­greinda rann­sókn.

Maríanna Jón­as­dóttir, stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, segir slíkt hið sama. Eimskip hafi ekki upp­lýst sjóð­inn um kæru Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til Sérstaks sak­sók­ara. Hún segir verð­fall á hluta­bréfum Eimskips mikið áhyggju­efni, og hyggst ræða stöð­una á næsta fundi líf­eyr­is­sjóðs­ins á mánu­dag.

Upplýsingar sem vörðuðu markaðinn


Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, seg­ist fyrst hafa frétt af kæru Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í Kast­ljós­inu. "Í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar höfðum við sam­band við Eimskip, sem svo sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna máls­ins." Hann segir að Kaup­höllin muni nú fara vel yfir allar þær upp­lýs­ingar sem Eimskip hafði undir höndum varð­andi rann­sókn­ina. Aðspurður um hvort ekki hafi verið um verð­mynd­andi upp­lýs­ingar að ræða sem Eimskip hefðu átt að til­kynna Kaup­höll­inni um, svar­aði hann: "Almennt séð tel ég að þetta séu upp­lýs­ingar sem hafa áhrif á mark­að­inn, það er að þessi vit­neskja varði mark­aðs­að­ila."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár