Davíð hjólar í Hreiðar Má, Fréttablaðið og Björn Val Gíslason

"Í gær var birt yfir þvera for­síðu Frétta­blaðs­ins lyga­frétt með við­eig­andi myndum um stofnun og raunar ein­stak­ling sem öll fjöl­miðla­sam­steypan hefur haft veiði­leyfi á síðan ítök núver­andi eig­enda hófust þar, þótt um hríð væri logið til um eign­ar­haldið." Þetta skrifar Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, í Reykja­vík­ur­bréf sunnu­dags­út­gáfu Morg­un­blaðs­ins.

Fréttin sem Davíð vísar til fjall­aði um full­yrð­ingar Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, um að bank­inn hafi fengið 85 millj­arða þrauta­vara­lán hjá Seðla­bank­anum án þess að gengið yrði frá veðum eða lána­skjölum. Eins og kunn­ugt er nemur tap skatt­greið­enda vegna lán­veit­ing­ar­innar 35 millj­örðum króna.

"Eitt sím­tal við við­kom­andi, stofn­un­ina eða ein­stak­ling­inn hefði tryggt að blaðið yrði ekki sér til skammar með breið­síðu sinni," skrifar Davíð. Seðla­bank­inn sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem full­yrð­ingum Hreiðars Más var vísað á bug. "Þegar
lygi blaðs­ins var afhjúpuð var þó ekki beðist afsök­unar. Nei, þá var frétta­stofa sjón­varps sama eig­anda látin seil­ast í gamlan texta, sem Björn Valur Gíslason, af öllum mönnum, hafði soðið saman fyrir tveimur árum til að rétt­læta lyg­ina. Rándýr fjöl­miðla­nefnd lætur ekki slíka mis­notkun til sín taka, enda er hún sjálf­sagt orðin venju­helguð eftir hálfan annan ára­tug af sam­bæri­legum trakt­er­ingum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár