Samkeppniseftirlitið vill opinbera rannsókn á leka trúnaðarupplýsinga

Sam­keppn­is­eft­ir­litið vill að Rík­is­sak­sókn­ari rann­saki hvaðan og hvernig trún­að­ar­upp­lýs­ingum um efni kæru eft­ir­lits­ins til Sérstaks sak­sókn­ara hafi verið miðlað til óvið­kom­andi aðila. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sent erindi þess efnis til Rík­is­sak­sókn­ara, en til­efnið er umfjöllun Kastljós um málið.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lítur miðlun upp­lýs­ing­anna mjög alvar­legum augum. Hjá eft­ir­lit­inu hefur verið gripið til aðgerða til að ganga úr skugga um hvort upp­lýs­ing­arnar hafi borist þaðan.

Til­kynn­ing Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna máls­ins:

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur í dag beint erindi til rík­is­sak­sókn­ara þar sem farið er fram á opin­bera rann­sókn á því hvaðan og hvernig trún­að­ar­upp­lýs­ingum um efni kæru Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara hafi verið miðlað til óvið­kom­andi aðila. Um er að ræða kæru um ætluð brot til­tek­inna starfs­manna tveggja fyr­ir­tækja á sam­keppn­is­lögum. Er þetta gert í til­efni af umfjöllun Kast­ljóss um málið nú í vik­unni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lítur fram­an­greinda miðlun upp­lýs­inga mjög alvar­legum augum. Hefur rík­is­sak­sókn­ara verið greint frá þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til innan Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til þess að ganga úr skugga um hvort upp­lýs­ing­arnar hafi borist þaðan og jafn­framt auð­velda rann­sókn máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár