Hvítvín og kommúnismi hefur göngu sína í Hlaðvarpi Kjarnans

Nýr viku­legur hlað­varps­þáttur hefur göngu sína í Hlað­varpi Kjarnans á morgun, en hann hefur hlotið nafnið Hvítvín & komm­ún­ismi. Umsjón­ar­menn þátt­ar­ins eru Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Freyr Rögn­valds­son.

Áslaug Arna er fyrr­ver­andi for­maður Heimdallar, en hún varð þjóð­þekkt á einni nóttu á Íslandi þegar hún sagði einka­sölu rík­is­ins á áfengi vera tíma­skekkju, og að hún vildi geta keypt sér hvítvín með humr­inum alla daga vik­unnar, hvaða tíma dags sem er. Hún var jafn­framt fastur gestur í sjón­varps­þætt­inum Mín skoðun, í umsjón Mikael Torfa­sonar, sem kom aldrei úr páska­fríi.

Freyr Rögn­valds­son er fyrr­ver­andi blaða­maður á 24 Stundum og Bænda­blað­inu og er ann­ál­aður "komm­ún­isti" og gengst upp í því.

Hlað­varps­þátt­ur­inn Hvítvín og komm­únsimi verður viku­lega á dag­skrá í Hlað­varpi Kjarnans, en þar munu þau Áslaug Arna og Freyr takast á um helstu mál­efni líð­andi stundar í íslensku sam­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár