Upplýsingar Hreiðars Más um Seðlabankalán ekki nýjar af nálinni

Frétta­blaðið slær upp á for­síðu sinni frétt í dag, þar sem haft er eftir Hreiðari Má Sig­urðs­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, að bank­inn hafi fengið 85 millj­arða króna þrauta­vara­lánið frá Seðla­banka Íslands 6. októ­ber 2008, án þess að gengið hafi verið frá veð­inu í danska FIH-bank­ann eða lána­skjölum. Þessar upp­lýs­ingar, um fyr­ir­komu­lag lán­veit­ing­ar­innar, hafa legið fyrir í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar frá 20. febr­úar 2013.

Nokkru áður hafði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri veitt nefnd­inni upp­lýs­ingar um að verk­lags­reglur bank­ans hafi verið brotnar við lán­veit­ing­una og einu gögnin sem til séu um hana sé frægt sím­tal Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi seðla­banka­stjóra, sama dag og lánið var veitt. Lánið til Kaup­þings var án skil­yrða og veitt gegn veði í danska bank­anum FIH, sem var án veð­banda og kvaða­laust.

Þá segir í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar frá 20. febr­úar á síð­asta ári: "Ekki var gengið frá skrif­legum láns­samn­ingi á þessum degi, en kjörin á lán­inu voru að öðru leyti ákveðin þessi: Dag­setn­ing við­skipta 6. októ­ber 2008, láns­tími í dögum fjórir, nafn­vextir 9,40%. [...] Láns­samn­ing­ur­inn átti að fylgja í kjöl­farið, en vegna þeirrar atburða­rásar sem fór af stað eftir setn­ingu neyð­ar­lag­anna var hann aldrei gerður."

Þá kemur fram í fyrr­greindri skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar að ekki hafi verið gerð sér­stök banka­stjóra­sam­þykkt vegna lán­veit­ing­ar­innar. Í svari Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra, um hvort ekki hafi verið farið að verk­lags­reglum Seðla­bank­ans um þrauta­vara­lán við lán­veit­ing­una, segir: "Þegar reglur um verk­lag í neyð­ar­á­standi eru samdar liggur ekki fyrir hvernig aðstæður munu raun­veru­lega vera þegar á reynir. Aðstæður þann 6. októ­ber voru með þeim hætti að eng­inn tími var til að fylgja verk­lags­regl­unum form­lega eftir. Öll með­ferð máls­ins og ákvarð­ana­taka var hjá æðstu stjórn bank­ans. Öll áhersla var lögð á að tryggja rétt­ar­stöðu Seðla­bank­ans með því að veð­setn­ing tæk­ist. […] Lántaka Kaup­þings þ. 6. októ­ber 2008 bar ákaf­lega brátt að og því vannst ekki tími til að kanna hver staða Seðla­bank­ans væri varð­andi fulln­ustu á veð­inu, þ.e. að ganga að hlutafé bank­ans, enda var lánið veitt til að vinna bug á lausa­fjár­erf­ið­leikum og það átti að end­ur­greiða 4 dögum síðar. Það má telj­ast ólík­legt að FIH bank­inn hefði veitt Seðla­bank­anum aðgang að lána­samn­ingum sínum við fram­kvæmd vegna trún­aðar við lán­veit­endur sína.

Með lán­veit­ing­unni var stærsta hluta gjald­eyr­is­vara­forða Íslands á þeim tíma ráð­stafað til Kaup­þings, en bank­inn var yfir­tek­inn af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu þremur dögum síðar, eða þann 9. októer 2008. Tap íslenskra skatt­greið­enda vegna lán­veit­ing­ar­innar nemur 35 millj­örðum króna.

Undir skýrslu fjár­laga­nefndar frá 20. febr­úar 2013 rita þing­menn­irnir Björn Valur Gíslason, sem var jafn­framt for­maður nefnd­ar­innar, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, Val­gerður Bjarna­dóttir, Lúðvík Geirsson og Hösk­uldur Þór­halls­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár