Réðu systurdóttur og dóttur nefndarmanns í vinnu

Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um starf­semi Íbúða­lána­sjóðs réð syst­ur­dóttur Kirstínar Flygenring, sem átti sæti í nefnd­inni, í vinnu og dóttur Kirstínar einnig. Þær störf­uðu báðar við loka­frá­gang skýrsl­unnar. Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn Karls Garð­ars­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, en hann spurði ítar­lega um starfs­semi rann­sókn­ar­nefnda á vegum Alþingis, meðal ann­ars út í launa­kostnað og vinnu­fyr­ir­komu­lag.

Sigurður Hallur Stef­áns­son og Kirstín Flygenring hófu störf hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni 1. sept­em­ber 2011 og Jón Þor­valdur Heið­ars­sonar 6. sept­em­ber 2011. Tveir nefnd­ar­menn gátu í upp­hafi ekki helgað sig starf­inu að fullu, segir í svari for­seta Alþingis.

Var Jón Þor­valdur Heið­ars­son í 50% starfi frá 6. sept­em­ber til des­em­ber­loka 2011, í 80% starfi frá 1. jan­úar 2012 til marsloka 2012 og í 80% starfi frá 1. apríl til 31. maí 2013. Kirstín var í 75% starfi í nóv­em­ber 2011 og í 80% starfi í des­em­ber 2011. Nefndin skil­aði skýrslu sinni 2. júlí 2013. Laun Sigurðar voru á 23 mán­aða starfs­tíma nefnd­ar­innar 29,6 millj­ónir króna. Laun Kirstínar voru 25,6 millj­ónir króna og laun Jóns Þorvalds Heið­ars­sonar voru ríf­lega 24 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár