Bjarni Frímann fékk 39 milljónir fyrir vinnu sína

Hæstu launa­greiðslur til nefnd­ar­manna í rann­sókn­ar­nefnd um aðdrag­anda og orsakir fyrir falli spari­sjóð­anna fóru til Bjarna Frímanns Karls­sonar. Hann fékk sam­tals ríf­lega 39,1 milljón króna á starfs­tíma nefnd­ar­innar, sem stóð yfir frá 1. sept­em­ber 2011 og fram að því að skýrsla nefnd­ar­innar var kynnt, 10. apríl 2014.

Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn Karls Garð­ars­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Karl spurði ítar­lega út í kostnað við vinnu rann­sókn­ar­nefnda á vegum Alþingis um hrun bank­anna, Íbúða­lána­sjóð og fall spari­sjóð­anna.

Sigríður Ingv­ars­dóttir, hér­aðs­dóm­ari, starf­aði sem for­maður nefnd­ar­innar til 20. sept­em­ber 2012 en Hrannar Már S. Hafberg tók við for­mennsku í nefnd­inni 1. októ­ber 2012 og gegndi henni þar til störfum nefnd­ar­innar lauk. Þau Sigríður, Hrannar, Tinna Finn­boga­dóttir og Bjarni Frímann Karlsson voru í fullu starfi fyrir nefnd­ina. Greiðslur til nefnd­ar­manna á starfs­tíma þeirra voru ann­ars vegar 16,1 milljón króna til Sigríðar Ingv­ars­dóttur í 13 mán­uði til 20. sept­em­ber 2012 og 24,1 milljón króna til Hrannars í 19 mán­uði frá 1. októ­ber 2012 og hins vegar 38,2 millj­ónir króna til Tinnu í 32 mán­uði, og 39.1 milljón króna til Bjarna Frímanns í 32 mán­uði, eins og áður sagði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár