Formaður RNA fékk 24,2 milljónir í laun fyrir störf sín

Á 16 mán­aða starfs­tíma Rann­sókn­ar­nefndar Alþings (RNA) um fall bank­anna voru laun Páls Hreins­sonar, for­manns nefnd­ar­innar, 24,2 millj­ónir króna, laun Sigríðar Bene­dikts­dóttur, sem átti sæti í nefnd­inni, 15,7 millj­ónir króna og laun Tryggva Gunn­ars­sonar, sem átti einnig sæti i nefnd­inni, rúm­lega 24 millj­ónir króna. Páll og Tryggvi voru að störfum allan tím­ann á starfs­tíma nefnd­ar­innar, en Sigríður var um tíma í hluta­starfi, en þó lengst af í fullu starfi. Nefndin hóf störf í jan­úar 2009 og skil­aði skýrslu sinni 12. apríl 2010.

Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn Karls Garð­ars­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Karl spurði ítar­lega út í kostnað við vinnu rann­sókn­ar­nefnda á vegum Alþingis um hrun bank­anna, Íbúða­lána­sjóð og fall spari­sjóð­anna.

Í svari við fyr­ir­spurn­inni sem beind­ist að RNA kemur fram að greiðslur vegna erlendra sér­fræð­inga og að hluta vegna vinnu við sér­staka sam­an­tekt um kross­eigna­tengsl sem unnin var í nafni erlends félags hafi numið alls tæp­lega 18 millj­ónum.

Í svari for­seta Alþingis er ítar­lega farið í gegnum kostnað við vinnu rann­sókn­ar­nefnd­anna, aðkeypta sér­fræði­að­stoð og einnig hvernig launa­kerfi voru byggð upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár