Landspítalinn biðlar til starfsfólks að bjóða sig fram í ebólu-teymi

Land­spít­al­inn byrj­aði í gær að aug­lýsa eftir sjálf­boða­liðum, á meðal heil­brigð­is­starfs­fólks spít­al­ans, í sér­stakt við­bragð­steymi vegna ebólu-far­ald­urs­ins. Teymið er hluti af við­bragðs­á­ætlun sjúkra­húss­ins vegna heims­far­ald­urs­ins. Spít­al­inn hyggst ekki skikka starfs­fólk í teymið, en því er ætlað að með­höndla ýmist ein­stak­linga sem smit­aðir eru af veirunni, eða þá sem eru grun­aðir um að vera smit­aðir. Enn hefur engin Íslend­ingur smit­ast af veirunni, svo vitað sé.

Tólf hjúkrunarfræðinga þarf til að annast hvern sjúkling


Til marks um umfang við­bragðs­á­ætl­unar Land­spít­al­ans, gerir hann ráð fyrir tólf hjúkr­un­ar­fræð­ingum á hvern sjúk­ling á sól­ar­hring. Skipu­lagið gerir ráð fyrir að tveir hjúkr­un­ar­fræð­ingar, í sér­stökum þartil­gerðum hlífð­ar­bún­ingum, ann­ist hvern sjúk­ling tvo til þrjá tíma í senn. Ör vakta­skipti má rekja til hlífð­ar­bún­ing­anna, sem ein­ungis er hægt að klæð­ast stuttan tíma í senn, en hverjum bún­ingi er fargað eftir hverja notkun. Enda smit­hætta mest þegar farið er úr og í gall­ana. Við­bragð­steymið mun und­ir­gang­ast strangar æfingar, til að vera við öllu búið þegar og ef upp kemur ebólu-til­felli á Íslandi.

Helst hafa þrjár sviðs­myndir. varð­andi mögu­lega komu ebólu veirunnar til lands­ins, verið nefndar. Að Íslend­ingur smit­ist af veirunni erlendis, komi með hana til lands­ins ein­kenna­laus og veik­ist svo. Ein­stak­lingur smit­aður af ebólu-veirunni getur verið ein­kenna­laus í allt að þrjár vikur, en hann er þó ekki smit­andi fyrr en sjúk­dóms­ein­kennin koma í ljós. Önnur sviðs­myndin gerir ráð fyrir að far­þega­þotu verði nauð­lent á Íslandi með smit­aðan ein­stak­ling, sem hafi farið að sýna ein­kenni ebólu í loft­helgi Íslands, og sú þriðja að smit­aður Íslend­ingur komi inn á spít­al­ann af göt­unni.

Getur tekið 3-4 daga að sannreyna smit


Komi upp grunur um smit­aðan ein­stak­ling á Íslandi, getur það tekið þrjá til fjóra daga að fá smit hans stað­fest, þar sem senda þarf sýni úr við­kom­andi til Stokk­hólms til grein­ingar. Grein­ing­ar­tími ann­ars staðar, þar sem öll tæki og tól eru til staðar til sýna­grein­ingar, hleypur á nokkrum klukku­stundum.

Ef upp kemur til­vik þar sem grunur leikur á að Íslend­ingur hafi smit­ast erlendis, er ekki víst að hann verði sendur til Íslands. Þá verður vafa­lítið reynt að koma honum á sjúkra­stofnun þar sem hvað bestu mögu­legu aðstæður eru fyrir hendi, en sú er ekki raunin hér á landi. Meðal ann­ars var fjallað um þetta á fundi Sval­barða­nefnd­ar­innar, sem er sam­ráðs­vett­vangur Norð­ur­land­anna um heil­brigð­is­við­búnað, á fundi sem fram fór í síð­ustu viku í Reykja­vík.

Dán­ar­tíðni þeirra sem smit­ast af ebólu er 40 til 90 pró­sent, en til þessa hafa yfir 4500 manns lát­ist af völdum veirunnar. Ástæða þess að dán­ar­tíðnin er svo á flökti er sú að tölur frá Vestur-Afríku eru á reiki. Því hefur verið spáð að í lok jan­úar verði um 1,4 millj­ónir manna smit­aðir af ebólu-veirunni, ef ekki tekst að hamla útbreiðslu hennar. Ebólu far­ald­ur­inn er versta heil­brigð­isvá sem steðjað hefur að heims­byggð­inni á sögu­legum tímum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár