Útskrift af símtali Davíðs og Geirs hefur farið víða

Útskrift af frægu sím­tali Davíðs Odds­sonar, þáver­andi Seðla­banka­stjóra, og Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, frá 6. októ­ber 2008, varð­andi 500 millj­óna evru þrauta­vara­lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings, hefur farið víða í stjórn­sýsl­unni. Tap skatt­greið­enda vegna lán­veit­ing­ar­innar nemur um 35 millj­örðum króna.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fékk útskrift af símtalinu


Frétta­stofa RÚV óskaði eftir því árið 2012 að Seðla­bank­inn léti umrædda hljóð­upp­töku af höndum, en bank­inn synj­aði beiðni frétta­stof­unnar um afhend­ingu upp­tök­unnar. Hljóð­upp­takan væri und­an­skilin upp­lýs­inga­lögum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæða í lögum um Seðla­bank­ann. Frétta­stofan kærði synj­un­ina til Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Í úrskurði nefnd­ar­innar er synjun Seðla­bank­ans stað­fest, en þar kemur fram að bank­inn hafi sent Úrskurð­ar­nefnd­inni afrit af útskrift sím­tals­ins í trún­aði, ásamt bréfi þar sem Seðla­bank­inn gerði athuga­semdir við kæru máls­ins.

Á þessum tíma áttu sæti í Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál; Trausti Fannar Valsson lög­fræð­ingur, sem jafn­framt var for­maður nefnd­ar­innar, Friðgeir Björns­son fyrr­ver­andi dóm­stjóri, og Sig­ur­veig Jóns­dóttir blaða­maður.

[caption id="attachment_9379" align="alignnone" width="624"] Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi banka­stjóri Seðla­banka Íslands, og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.[/caption]

Umboðsmaður Alþingis kynnti sér innihald símtalsins


Frétta­stofa RÚV vís­aði úrskurði nefnd­ar­innar til Umboðs­manns Alþingis, sem gerði ekki athuga­semd við að Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefði synjað frétta­stof­unnar um aðgang að hljóð­upp­töku að fyrr­greindu sím­tali. Í nið­ur­stöðu Umboðs­manns kemur fram að emb­ætt­inu hafi sömu­leiðis borist útskrift af sím­tal­inu.

Þá hefur Kjarninn heim­ildir fyrir því að útskrift af sím­tali Davíðs og Geirs hafi verið sent For­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Fjár­laga­nefnd Alþingis sótti fast á sínum tíma að fá afhenda sjálfa hljóð­upp­tök­una af sím­tal­inu, til að glöggva sig á því hvernig staðið var að lán­veit­ing­unni til Kaup­þings, án árang­urs. Seðla­bank­inn heim­il­aði að lokum nefnd­ar­mönnum fjár­laga­nefndar að lesa útskrift­ina af sím­tal­inu á sér­stökum fundi með full­trúum Seðla­bank­ans. Nefnd­ar­menn fengu hins vegar hvorki að halda eftir ein­tökum af útskrift­inni, né vitna til hennar í opin­berum skýrslum.

Geir H. Haarde neitar að aflétta trúnaði af hljóðupptökunni


Afhend­ing á upp­töku sím­tals­ins hefur strandað á Geir H. Haarde fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Í við­tali í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni á dög­unum, ítrek­aði Geir afstöðu sína til þess að trún­aði á sím­tal­inu yrði ekki aflétt.

„Þetta sam­tal, það er búið að vera að magna það upp. Ómerki­legir stjórn­mála­menn sem hafa verið að reyna að gera það að ein­hverju aðal­at­riði. Þetta sam­tal var tekið upp, reyndar ekki með minni vit­und. Ég vil ekki birta það því ég tel að það eigi ekki að hlera eða taka upp sam­töl við for­sæt­is­ráð­herr­ann við svona aðstæður. Þá geta menn bara komið seinna og reynt að koma á menn höggi vegna þess," sagði Geir H. Haarde í þætt­inum aðspurður um hljóð­upp­tök­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár