Formaður FRÍ vill að maraþonmálið verði rætt innan sambandsins

Einar Vil­hjálms­son, nýkjör­inn for­maður Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ), telur að mara­þon­málið svo­kall­aða, þar sem Arnar Pét­urs­son Íslands­meist­ari karla í mara­þoni var sak­aður um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu sem fram fór í lok sum­ars, verð­s­kuldi frek­ari umræðu innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar. Hann hyggst vísa mál­inu til frek­ari umræðu innan við­eig­andi fasta­nefnda FRÍ og fela fram­kvæmda­stjóra sam­bands­ins að óska eftir áliti þeirra fyrir næsta stjórn­ar­fund sam­bands­ins.

Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem Einar sendi Lind Freyju­dóttur, sam­býl­is­konu hlauparans Péturs Sturlu Bjarna­sonar, í dag. Hún lagði fram kæruna á hendur Arnari Pét­urs­syni, í umboði sam­býl­is­manns síns, og sak­aði Arnar um brot á reglum mara­þons­ins með því að hafa notið lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu.

Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, sem heyrir undir Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur (ÍBR) sem ann­ast fram­kvæmd hlaups­ins, við­ur­kenndi í úrskurði sínum að reglur mara­þons­ins hafi verið brotnar en taldi ósannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna. Þá hafi sigur hans í hlaup­inu verið það afger­andi að fylgd hjól­reiða­mann­anna hefði ekki haft áhrif á úrslit hlaups­ins, en Arnar var rúmum níu mín­útum á undan næsta Íslend­ingi í enda­markið, sem var áður­nefndur Pétur Sturla.

Kærendur kærðu nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar til dóm­stóls ÍSÍ sem stað­festi nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefnd­ar­innar. Nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ var þá áfrýjað til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ sem tók málið ekki til efn­is­legrar með­ferðar sökum form­galla á kærunni sem send var dóm­stóli ÍSÍ. Það er athygl­is­vert fyrir þær sakir að dóm­stóll ÍSÍ tók málið til efn­is­legrar með­ferðar þrátt fyrir ann­marka á kæru máls­ins.

Lind Freyju­dóttir hyggst ekki kæra málið aftur, en hún sendi Einari Vil­hjálms­syni, for­manni FRÍ bréf þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar krafði hún for­mann FRÍ um afstöðu hans í mál­inu með vísan í siða­reglur FRÍ, þar sem meðal ann­ars er kveðið á um að íþrótta­fólk virði alltaf reglur og venjur varð­andi heið­ar­leika (Fair Play) í íþróttum, og fari ætíð að keppn­is­reglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár